frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Virðulegi forseti. Bara örstutt innlegg inn í þetta mál sem er kannski ekki stórt í sniðum en það undirstrikar engu að síður mikilvægi EES-samstarfsins. Ég er ekki alls fyrir löngu komin heim eftir að hafa farið með hv. utanríkismálanefnd til Eistlands og Finnlands. Sú ferð undirstrikaði mikilvægi þess að við séum að sjálfsögðu fullir þátttakendur í Evrópusamstarfinu. EES-samstarfið hefur gengið vel en það er alveg ljóst, sérstaklega í kjölfar ákvarðana Finna og Svía að ganga í NATO, að við Íslendingar þurfum að spyrja okkur spurninga um hvort þessi EES-samningur dugi okkur núna þegar jafn hverfulir tímar ríkja í Evrópu og heiminum. Ég nefndi utanríkismálanefnd af því að það hafa náttúrlega heyrst raddir hér, bæði innan nefndarinnar en líka í þinginu, þar sem verið er að tala svolítið niður reglugerðir, tala niður tilskipanir og fleira sem koma frá Evrópusambandinu og m.a. í gegnum Evrópska efnahagssvæðið. Með aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu erum við búin að tryggja þetta dýrmæta fjórfrelsi þar sem er m.a. verið að tryggja frjálsa för fólks þvert yfir landamærin. Það hefur haft gríðarlega mikla þýðingu fyrir okkur Íslendinga og við sjáum það bara frá því að EES-samningurinn tók gildi á sínum tíma, ríflega 25 ár síðan, að hagvöxtur og velsæld hefur aukist hér á Íslandi af því að við erum þátttakendur á innri markaðnum. Það þýðir að við þurfum að taka upp ýmsar gerðir og eins og ég segi þá eru sumir gjarnan í þeim hjólförum að reyna að tala niður allar gerðir sem koma þaðan og reyna að setja þetta upp þannig að þetta sé eitt stórt bákn. Vissulega er Evrópusambandið ekki fullkomið, síður en svo. En það er samt þannig að við sem þjóð, smáþjóð segja sumir, erum sterkari í samfélagi þjóða, fleiri þjóða, stærri þjóða heldur en að standa ein og sér. Meðal annars þegar við erum að berjast fyrir réttindum launafólks, réttindum fólks sem er að fara á milli landa og íslenskt samfélag hefur m.a. verið að byggja á, atvinnulífið ekki síst, á umliðnum árum. Þannig að um leið og hægt er að segja að þetta sé bara eitt af þessum málum sem koma frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn þá er þetta táknrænt mál um það hvað samningurinn skiptir okkur miklu máli og ekki síst þegar kemur að einum þætti fjórfrelsisins sem snýr að að frjálsri för fólks.
Nefndin bendir réttilega á að frumvarpið felur ekki í sér efnisbreytingar í rauninni á þeim reglum sem gilda núna um EURES-netið en við vitum að EURES er sannarlega lykillinn að því að frjáls för fólks hafi þýðingu fyrir almenning innan Evrópu. EURES gerir okkur kleift að sækja um störf alls staðar í álfunni og gerir um leið íslenskum atvinnurekendum auðveldara að sækja vinnufærar hendur, sem mikil eftirspurn er eftir um þessar mundir, á stærra svæði en annars stæði til boða. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Allar þessar stoðir sem atvinnulífið hefur þurft að reiða sig á, við erum að fá þær stoðir og þeim er að fjölga og þær eru að styrkjast í gegnum samvinnu okkar á sviði innan Evrópu og þess að vera þátttakendur innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Ég nefndi hér ferð utanríkismálanefndar til Finnlands og Eistlands og það er náttúrlega alveg ljóst að þeir eru að styrkja sínar varnir. Það var áhugavert að heyra að það er ekki bara gert, að þeirra mati, með fullri þátttöku í NATO. Bara fyrir 24. febrúar, áður en innrásin fer af stað, þessi grófa árás og ofbeldi af hálfu Rússa með innrásinni í Úkraínu, þá var fylgi í Finnlandi og Svíþjóð hvað varðar NATO-aðild þessara ríkja í kringum 30%, milli 30–35%. Síðan kemur innrásin og Pútín sýnir sitt rétta andlit í rauninni og þá breytist heimurinn og þá líka viðhorf þessara vinaþjóða okkar, Finna og Svía. En það sem var áberandi líka, í þeim samtölum sem ég átti og á þeim fundum sem við sátum á, að þeir horfðu á samstarfið í gegnum NATO og tækifæri og öryggi sem þessar þjóðir sjá og finna í gegnum NATO, sem tvær hliðar á sama peningnum þegar kemur að öryggi almennt í álfunni. Þá er ESB hinn aðilinn. Við þurfum að átta okkur á því að efnahagssamvinna sem stuðlar að auknum lífsgæðum og meira öryggi fyrir framfærslu fólks eykur möguleika og líkur á því að það sé friður á viðkomandi svæði. Efnahagssamvinna með þeim þjóðum sem við viljum vera í samvinnu við, og það eru náttúrlega fyrst og síðast Evrópusambandsþjóðirnar ásamt Bandaríkjunum, þjóðum sem byggja á sömu gildum og við — það er jafn mikilvægt að undirstrika þá samvinnu og það samstarf og dýpka það. Það er jafn mikilvægt fyrir fullveldi landsins eins og varnarsamstarfið sem slíkt, varnarsamstarfið sem við tókum markvisst ákvörðun um árið 1949 með því að verða stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu, blessunarlega, það var framsýnt að taka það skref. Við sjáum hvaða leiðir þjóðir Evrópu sem standa frammi fyrir þeirri ógn sem stafar frá Pútín og hans kónum velja. Þær velja samstarf vestrænna lýðræðisþjóða, annars vegar í gegnum NATO og hins vegar í gegnum ESB, að tryggja og treysta fullveldi og varnir landsins í gegnum efnahags- og varnarsamstarf. Þetta tvennt verður ekki sundur slitið. Þetta skelfilega árásarstríð Pútíns gegn Úkraínumönnum er náttúrlega ógn við lýðræði og mannréttindi í okkar heimshluta og getur haft gríðarlega mikil og alvarleg og djúpstæð áhrif, bæði viðskiptaleg og efnahagsleg en líka áhrif á aðra þætti ef við horfumst ekki í augu við ástandið eins og það er. Til viðbótar við pólitísk áhrif stríðsins sem hafa valdið mikilli óvissu er ákveðinn öldugangur í heimsviðskiptum í ljósi vaxandi spennu á milli Bandaríkjanna og Kína. Þetta allt kemur til viðbótar við það ástand sem við stöndum frammi fyrir í Evrópu í dag. Það er hætta á því, raunveruleg hætta á því að það skapi meiri togstreitu milli lýðræðis- og einræðisríkja og þá skiptir máli að við Íslendingar séum alveg skýr í okkar afstöðu.
Ég talaði um það að flestar aðrar þjóðir og benti á það áðan að þær þjóðir sem standa frammi fyrir ákveðinni ógn af hálfu Rússa og Pútíns eru að bregðast við með mismunandi hætti en allar segja þær: Við þurfum aukið samstarf. Við þurfum dýpra samstarf við okkar vinaþjóðir, lýðræðisþjóðir. Það er til að mynda á morgun sem Danir — sem hafa ekki tekið þátt í varnarhlutanum innan Evrópusambandsins, hafa ekki verið þar fullir þátttakendur og ákváðu á sínum tíma að standa fyrir utan — svara með því að þora að spyrja þjóðina: Eigum við að taka skrefið til fulls innan Evrópusambandsins og vera fullir þátttakendur í varnarhluta Evrópusambandsins? Ríkisstjórnin þar þorir að spyrja dönsku þjóðina: Eigum við að fara alla leið í Evrópusambandsstarfinu til að treysta og tryggja varnir okkar, til að treysta og tryggja fullveldi okkar? Hún sinnir þeirri frumskyldu sem allar ríkisstjórnir hafa, að standa vörð um öryggi borgaranna. Það verður auðvitað forvitnilegt að sjá hver niðurstaðan verður úr þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á morgun. En Danir svöruðu svona. Dýpra, meira, markvissara samstarf. Fá sæti við borðið.
Ég hef undirstrikað það þegar kemur að framgöngu ráðherra í ríkisstjórn, og þá er ég með utanríkisráðherra í huga, þá hef ég fram til þessa verið ánægð með framgöngu ráðherrans og viðbrögð hennar. Mér finnst þau hafa verið fumlaus, þau hafa verið sterk og afdráttarlaus, enda hefur utanríkismálanefnd algerlega verið einhuga og ég veit að ráðherranum hefur þótt það mikilvægt og styrkja sig að nefndin hefur algerlega staðið einhuga á bak við ráðherrann í viðbrögðum sínum. En viðbrögð ráðherrans takmarkast auðvitað af því hvað stendur í ríkisstjórnarsáttmálanum. Ráðherrann getur ekkert gert meira heldur en þar stendur þannig að öll viðbrögðin miðast í rauninni ekki við mikið meira en að fylgja lágmarksskuldbindingum okkar Íslendinga við bandalagsþjóðir okkar í ESB og NATO. Ríkisstjórnarsáttmálinn veitir ráðherranum ekkert svigrúm til frumkvæðis. Fyrir utan það að maður hefur náttúrlega fengið spurningar úti þegar við erum að hlusta á ráðherra Íslands styðja stækkun á NATO, blessunarlega og það gerir utanríkismálanefndin öll, með inngöngu Finna og Svía. Það er mjög erfitt, og ég segi þetta alls ekki til þess að kasta rýrð á annars okkar ágæta forsætisráðherra, að horfa upp á það að síðan kemur formaður forystuflokks ríkisstjórnarinnar heim og talar fyrir því að minnka NATO með því að draga Ísland út. Þetta er auðvitað ekki boðlegt. Ég vil hvetja Vinstri græn til þess að endurskoða sína stefnu í utanríkis- og varnarmálum. Það myndi skipta að mínu mati miklu máli fyrir hagsmuni okkar Íslendinga. Ég vil hvetja Vinstri græn til þess. Ég skil vel að það kæti fólk hér inni en ég lifi í voninni eins og segir í laginu góða og bind vonir við að það séu a.m.k. raddir innan Vinstri grænna sem eru þeirrar meiningar að hagsmunirnir í dag, veruleikinn í dag, séu með allt öðrum hætti heldur en þegar Vinstri græn og þeirra forverar, Alþýðubandalagið og síðan Sósíalistaflokkurinn, tóku þessa einörðu afstöðu gegn NATO á sínum tíma. Vandi utanríkisráðherra sem eflaust gæti hugsað sér stærri og mikilvægari skref þegar kemur að varnar- og öryggismálum er að ríkisstjórnarsáttmálinn bindur hendur ráðherrans. Ég efast ekki um það, þekkjandi Sjálfstæðisflokkinn mætavel, að ef Sjálfstæðisflokkurinn með utanríkisráðherrann, stærsti flokkurinn í ríkisstjórn, væri með öðrum í ríkisstjórn þá væri búið að taka markvissari skref til að styrkja varnarsamvinnuna við Bandaríkin til að mynda. Við erum með varnarsamninginn sem er gríðarlega mikilvægur frá árinu 1951 við Bandaríkin. En hann mótast enn af þeim viðmiðunum sem voru 1951 og síðan með ákveðnum uppfærslum, vissulega. En í dag eru aðstæður gjörbreyttar sem Ísland stendur frammi fyrir eins og fleiri lýðræðisríki. Aðstæður eru gjörbreyttar og við þurfum að taka skrefið til Bandaríkjamanna, óska a.m.k. eftir því að við uppfærum varnarsamninginn við Bandaríkin sem hafa tekið að sér að taka til varna fyrir okkur ef á okkur verður ráðist. En samningurinn verður þá að treysta varnarsamvinnuna við Bandaríkin þannig að hann taki líka til netárása sem beinast að öryggi Íslands, taki líka með í reikninginn mikilvægi samgangna, að þær séu órofnar, taki til birgða- og fólksflutninga, sæstrengja og orkuöryggis. Við þurfum að eiga þetta samtal við Bandaríkin og byggja enn frekar undir þennan mikilvæga varnarsamning. Fyrir utan að það er heldur ekki skýrt í samningnum hvenær það er hægt að virkja hann, verkferla og ákvarðanatöku þarf að skýra miklu betur til þess að við áttum okkur á því hvenær hægt er að virkja aðstoð Bandaríkjanna. Þetta allt þyrfti að taka til greina og líka að eiga viðtöl og samtöl við Bandaríkin en ekki síst NATO um það hvort hægt sé að auka viðveru og í rauninni tryggja varanlega viðveru varnarliðs. Það getur verið með öðrum hætti, það þurfa ekki alltaf að vera Bandaríkjamenn, en þannig að það verði hægt að segja og við Íslendingar getum sagt: Við ætlum alltaf að vera með varanlegt herlið hér á Íslandi. Það er fælingarmáttur í því og við þurfum á fælingarmætti að halda þegar við stöndum andspænis svona einræðisríki í rauninni eins og Rússland er í dag undir forystu Pútíns. Þessi skref hefðu örugglega verið tekin af hálfu Sjálfstæðisflokksins ef flokkurinn væri ekki undir forystu flokks sem er einarðlega á móti öllu því sem tengist hervörnum, sem er á móti NATO, sem er á móti varnarsamstarfinu við Bandaríkin. Þess vegna er pottlok ofan á þessu þegar við þurfum einmitt að taka ákveðnari og skýrari skref þegar kemur að varnar- og öryggismálum okkar til að tryggja fullveldið.
Þetta er sá armur sem tengist varnar- og öryggismálum sem við höfum beint sjónum okkar að í gegnum varnarbandalagið NATO. En það hefur ekki verið hreyft við neinu. Það hefur ekkert verið gert. Stóraukin borgaraleg þátttaka okkar Íslendinga gæti verið framlag okkar til NATO. Það hefur ekki heldur verið gert. Eitthvað aðeins bætt í, einn og einn starfsmaður, en til markvissrar aukningar á framlagi okkar Íslendinga á þessum tímum hefur ekki komið af því að við erum með þessa togstreitu í ríkisstjórn þar sem er erfitt að ræða utanríkismálin, sérstaklega varnarmálin. Það sem sameinar er náttúrlega endalaus andúð á Evrópusambandinu. Það eru náttúrlega mjög varasamar og hættulegar raddir sem maður er að heyra núna sérstaklega innan Sjálfstæðisflokksins um að það eigi að endurskoða EES-samstarfið. Það þurfi að taka það að einhverju leyti upp. Þetta eru orðnar háværar raddir innan Sjálfstæðisflokksins og ég óttast að sá íhaldsarmur muni á endanum ná tökum á flokknum. En ég vil hvetja þau hin sem eru fylgjandi EES-samstarfinu að standa vörð um a.m.k. EES-samninginn og það samstarf og auðvitað vil ég líka hvetja viðkomandi til að treysta sér einfaldlega til að taka með okkur alla vega næsta skref sem er að undirbúa okkur Íslendinga fyrir hugsanlegt skref inn í Evrópusambandið, draga fram og meta kosti og galla Evrópusambandsaðildar, draga það fram. Það þarf ekkert að taka langan tíma. Finnar og Svíar mátu sína aðild að NATO, mjög ítarleg gögn þar sem var farið yfir kosti og galla aðildar þeirra að NATO og þeir eru búnir að sækja um á mjög skömmum tíma, á nokkrum vikum. Við getum líka gert þetta. Ég vil hvetja þennan hóp innan Sjálfstæðisflokksins og innan allra ríkisstjórnarflokkanna að koma með okkur sem höfum talað fyrir því að við skulum a.m.k. spyrja þjóðina hvort við eigum að klára aðildarviðræðurnar við ESB til þess að treysta fullveldi okkar, til þess að treysta öryggi okkar og varnir af því að það gerum við ekki eingöngu í gegnum hervarnir heldur líka í gegnum efnahagssamvinnu. Þannig treystum við líka varnir okkar Íslendinga. Ég tala nú ekki um að á þessum tíma, þegar gerð er árás á gildi okkar eins og frelsi, lýðræði, mannréttindi, þá þurfa þessar þjóðir að standa saman og þá þurfum við að taka til varna og við gerum það m.a. með dýpra samstarfi innan Evrópu.
Ég sé að tíminn er að renna út í þessu máli sem ég styð varðandi breytingu á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan EES. (Forseti hringir.) Ég styð það en vildi í þessu samhengi draga fram að þótt málið láti ekki mikið yfir sér er það einn af þeim lyklum fyrir okkur Íslendinga til þess að styðja og treysta innviði landsins (Forseti hringir.) og veita okkur tækifæri til þess að byggja upp lífsgæði og meiri efnahagsbata en ellegar hefði verið, hefðum við staðið utan EES.