152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.

517. mál
[21:33]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og þessa drjúgu umfjöllun. Ég hjó aðeins eftir því að hv. þingmaður, sem einnig á sæti í utanríkismálanefnd, ræddi um að á ferðum utanríkismálanefndar um Norðurlönd og Eystrasaltsríkin á dögunum hefði verið spurt aðeins út í afstöðu stjórnvalda, afstöðu ríkisstjórnar Íslands til NATO, til aðildar af því að nú eru auðvitað að eiga sér stað mjög miklar breytingar með umsóknum Finnlands og Svíþjóðar að NATO. Íslenskir þingmenn voru spurðir á ferðum sínum erlendis hver væri raunveruleg afstaða leiðtoga Íslands til NATO-aðildar og stækkunar NATO. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort spurt hafi verið svona léttvægt, í glettni, eða hvort fólk hafi raunverulegar áhyggjur af því að afstaða íslenskra stjórnvalda sé á einhvern hátt reikul, að það sé lítið mark á okkur takandi eða að ekki sé hægt að stóla á það sem íslensk stjórnvöld segja á alþjóðavettvangi og í alþjóðlegu starfi.