frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er gott að heyra að þetta hafi ekki verið svona áhyggjuþrungin umræða heldur meira spurt af forvitni. Maður hefur eðlilega, kannski ekki áhyggjur af en manni er ekki sama um orðspor okkar, maður vill að það sé mark á okkur takandi á erlendri grundu. Ég verð að segja að mér finnst ánægjulegt að heyra að formaður utanríkismálanefndar, sem er þingmaður Vinstri grænna, skuli ekki vera að flagga þeirri skoðun síns flokks á erlendri grundu eins og hann gæti í rauninni gert. Hann er formaður utanríkismálanefndar og gæti nýtt ferðina til að vekja athygli á því. Það er gott því að ég minni á að þegar við samþykktum þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland hér um árið þá gerðu fulltrúar Vinstri grænna fyrirvara, sérstaka bókun, þar sem þau sögðust samþykkja stefnuna að öllu öðru leyti en varðandi NATO. Þar var hæstv. forsætisráðherra ásamt þáverandi þm. Árna Þór Sigurðssyni, sem nú er sendiherra í Moskvu. Það er auðvitað frekar óheppilegt þegar alltaf er verið að tala um að styðja þjóðaröryggisstefnuna, að það skuli vera þessi ríki, sterki fyrirvari sem er bara færður þar inn með bókun. Ég ber alveg virðingu fyrir því að fólk geti haft alls konar skoðanir á NATO. Það er ekkert vandamál. Í þessum leiðangri sem við erum núna og þessu mikilvæga máli og þessari breyttu heimsmynd sem orðið hefur á þessu ári þá hafði ég áhyggjur af því að fólk væri einhvern veginn að efast um trúverðugleika okkar þarna.