152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[22:35]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og þær fjölmörgu spurningar sem hún bar upp. Eins og ég kom inn á í ræðu minni tel ég mjög mikilvægt að verið sé að gera þær kröfur að dómarar sem eru skipaðir í Félagsdóm uppfylli þessi hæfisskilyrði. Ég held að það skipti mjög miklu máli að þar séu alfarið einstaklingar sem uppfylla þau. Ég talaði um það í ræðu minni og talaði líka um það í andsvari við hv. þingmann að mér finnst mjög gott að verið sé að gera það. Það er líka verið að gera það vegna tilmæla GRECO, svo því sé haldið til haga. Það er margt gott sem kemur frá GRECO sem við þurfum að hafa í huga.

Ég vísaði í endurupptökudómstólinn og fyrirkomulagið þar í dæmaskyni af því að dómarar við alla dómstóla landsins, héraðsdómadómstólana, Landsrétt og Hæstarétt, eru allir skipaðir ótímabundið. Þeim verður ekki vikið frá nema með dómi ef þeir gerast brotlegir, annars geta þeir starfað nánast bara eins lengi og þeir vilja, þó að það séu vissulega einhver aldursmörk. En endurupptökudómstóllinn er svipaður að því leyti að þetta er ekki dómstóll sem er starfandi á hverjum degi og tekur við fjölda mála heldur er hann kallaður inn tilfallandi. Það er það sem gerir það að verkum að þeir verða eðlislíkir að einhverju leyti. Endurupptökudómstóllinn er ólíkur að því leyti að það eru engir aðilar að honum. Hann er algerlega sjálfstæður. Það er munurinn á Félagsdómi og endurupptökudómstól að aðilar vinnumarkaðarins eru á einhvern hátt aðilar að — þeir geta vísað sínum ágreiningsmálum til Félagsdóms. Það gerir þessa dómstóla eðlisólíka. Ég mun koma inn á fleira á eftir.