152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[22:58]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir ræðuna, heiðarleg ræða og athyglisverð þar sem þingmaðurinn kemur inn á samtóna álit ASÍ og Samtaka sveitarfélaga um að þetta sé gott mál. Eðlilega hlýtur maður að taka mark á því og ég segi fyrir mig að ef ég hefði verið í nefndinni og hlustað á þá sem gesti þá hefði ég hugsað líkt hv. þingmaður: Já, heyrðu, þetta er bara hið besta mál.

Ég er búinn að vera að rúlla í gegnum málið á hraðbergi, þessi álitamál sem GRECO kemur fram með. Samt geri ég mér ekki alveg grein fyrir því og ég myndi vilja spyrja þingmanninn hvort hann geti sagt mér hvað þeir voru að setja út á eða vildu fá betrumbót á. Það stendur í kaflanum um mat á áhrifum, með leyfi forseta:

„Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að komið verði til móts við framangreindar athugasemdir GRECO í tengslum við skipun dómara í Félagsdóm. Þá þykir efni frumvarpsins stuðla að auknum skýrleika hvað varðar þau ákvæði laga um stéttarfélög og vinnudeilur sem lúta að Félagsdómi.“

Þarna er í raun gert ráð fyrir því að komið verði til móts við þetta en (Forseti hringir.) þetta er ekki þéttara en það. Það væri gott ef þingmaðurinn gæti komið inn á spurninguna um hvað þeir voru að fara fram á hjá GRECO.