152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[23:35]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir fína ræðu og einlæga eins og hjá þingmanninum á undan, hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni. Hún spurði heiðarlegra spurninga um stöðuna sem þetta mál er í. Það sem vakti athygli mína í ræðu þingmannsins var m.a. að Samtök íslenskra sveitarfélaga og ASÍ skuli vera sammála um að þetta sé hið besta mál en síðan kemur athugasemd frá Lögmannafélaginu og öðrum sem ætti kannski ein og sér að duga til þess að þetta mál yrði unnið betur. Síðan hefur verið rætt um GRECO, sem er að vinna gegn spillingu. Þeir virðast hafa gert einhverja athugasemd sem ég átta mig ekki á og var reyna að renna í gegnum, fékk ekki svar við áðan. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður getur leiðbeint mér í því. Svo kom líka fram í ræðu sem ég heyrði áðan að hv. þm. Óli Björn Kárason hefði skrifað undir nefndarálitið með fyrirvara. Jafn vandaður maður og þingmaður sem Óli Björn Kárason er hefði nú átt að fara fram á það að þetta mál yrði ekki tekið út úr nefnd fyrr en hann þyrfti ekki að setja fyrirvara við það. Þannig að mér finnst eiginlega spurningin vera, og það kom líka fram í ræðu þingmannsins: Er ekki alveg einboðið að þetta mál verði kallað aftur inn á milli 2. og 3. umr. til nefndar?