152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[23:38]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni kærlega fyrir andsvarið. Nú er klukkan farin að halla í miðnætti og þá fara hlutir á flot hér, m.a. nöfn kollega. En það er rétt sem forseti segir, framsögumaður málsins, hv. þm. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, lýsti því yfir í ræðustól áðan að hún hygðist taka málið inn til umsagnar og ég er þakklát fyrir þau viðbrögð. Hún gerir það ekki að beinni ósk neins sem hér hefur tekið til máls heldur vegna þess að hún les umræðuna þannig. Ég veit ekki hver fyrirvarinn er. Nú sit ég ekki í velferðarnefnd. Við í Viðreisn erum þar með áheyrnarfulltrúa sem er ekki samþykkur þessu máli en er hins vegar fjarverandi í dag þannig að ég hreinlega þekki ekki til þess hvort það er vegna efnislegra athugasemda, sem hún hefði verið mun betur til fallin en ég að koma á framfæri hér, eða hvort það var önnur ástæða. Einhvern fyrirvara hefur hv. þm. Óli Björn Kárason haft. En varðandi það sem spurt er hér um, um athugasemdir GRECO, þá áttaði ég mig ekki alveg á því eftir hverju hv. þingmaður var að leita í sambandi við það. Það er kannski það sem ég nefndi sérstaklega varðandi hæfni þessara þriggja dómara sem tilnefndir eru af Hæstarétti, hér í málinu er það tekið skrefinu lengra og ekki eingöngu tilgreint að þeir þurfi að hafa til að bera þá hæfni að geta gegnt starfi embættisdómara heldur beinlínis þurfi að vera það. Þá er farið að þrengjast mjög um og, eins og bent er á í umsögn Lögmannafélagsins, getur það hreinlega búið til ágreining og skapað jafnvel vanhæfi ef um er að ræða tiltekin mál sem vísað er til dómstólsins.