152. löggjafarþing — 83. fundur,  1. júní 2022.

störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Frú forseti. Á dögunum var hæstv. forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir í viðtali við Fréttablaðið um útlendingafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Hún sagði, með leyfi forseta:

„… en svona mál reyna alltaf á, það er bara þannig. Líka vegna þess að í útlendingamálunum snýst umræðan svo oft um einstök mál á meðan hefur skort á umræðu um hvert beri að stefna í málaflokknum.“

Hér snýr hæstv. forsætisráðherra öllu á haus. Þessi ríkisstjórn hefur í fjórgang lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um útlendinga sem hefur það eina markmið að skerða réttindi flóttafólks, auðvelda og flýta brottvísunum. Stefna Katrínar Jakobsdóttur og ríkisstjórnar hennar birtist auðvitað í því hverju þau hleypa í gegnum ríkisstjórn í þessum efnum. Í hvert sinn af þessum fjórum skiptum sem þau hafa lagt fram þetta kýrskýra stefnuplagg sitt hefur orðið mikil umræða, bæði á þingi, sem hefur rætt stefnu ríkisstjórnarinnar í rúmar 13 klukkustundir, og í samfélaginu öllu, þar sem biðlað hefur verið til ríkisstjórnarinnar um að henda þessu frumvarpi rakleiðis á ruslahaugana.

Í öðru lagi snýr hæstv. ráðherra öllu á haus vegna þess að forsætisráðherra, sem gerir athugasemd við að umræðan snúist svo oft um einstök mál frekar en stefnuna í málaflokknum í heild, veit auðvitað að það er algjörlega augljóst að markmiðið með útlendingafrumvarpinu er einmitt að kæfa umræðu og mótmæli um þessi einstöku mál sem hún gerir athugasemd við að séu rædd. Frumvarpið á jú að gulltryggja það að flóttafólk myndi ekki tengsl við íbúa hér á landi með því að gera Útlendingastofnun fært að vísa öllum flóttamönnum sem fengið hafa vernd, t.d. í Grikklandi, rakleiðis úr landi áður en nokkur íbúi þessa lands fær tækifæri til að kynnast þeim.

Forseti. Stefnan er skýr: Þessi ríkisstjórn er fjandsamleg fólki á flótta. Það sanna einstöku málin, en líka ferföld tilraun Katrínar Jakobsdóttur, ríkisstjórnar hennar, til að svipta flóttafólk þeim litla möguleika sem það þó á til að fá hér skjól.