störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær birtist svar við fyrirspurn minni til fjármálaráðuneytisins um hverjir nýttu úrræðið Allir vinna frá árinu 2020, en úrræðið var framlengt fyrir áramót. Það felur í sér skattafslátt í tengslum við framkvæmdir og viðhald á húsnæði. Í svarinu kemur fram að ríkissjóður hafi orðið af 15 milljörðum kr. vegna Allir vinna og hefur þriðjungur runnið til byggingarfyrirtækja. Höfum í huga að helstu rökin fyrir þessu úrræði voru að auka svigrúm venjulegs fólks til að ráðast í framkvæmdir og koma í veg fyrir svarta atvinnustarfsemi. Ég áttaði mig ekki á því, virðulegi forseti, að koma þyrfti í veg fyrir svartar greiðslur frá byggingarfyrirtækjum. Er mikið um umslagsgreiðslur fyrirtækja sín á milli sem réttlæta 5 milljarða kr. skattafslátt? Byggingarstarfsemi er ein fárra atvinnugreina þar sem rekstrarafgangur jókst á tímum heimsfaraldurs og var afkoma greinarinnar á tímabilinu sú besta á öldinni. Þetta er ótrúleg forgangsröðun þensluhvetjandi fjármagns á viðkvæmum tímum.
Í svari fjármálaráðuneytisins má einnig finna greiningu á einstaklingum sem nýttu úrræðið eftir tekjutíundum. Í einhverjum tilvikum sækja húsfélög líka um úrræði fyrir einstaklinga, en ekki er hægt að sjá dreifingu í hópi þeirra. En í hópi einstaklinga kemur í ljós að 54% af skattafslættinum runnu til tekjuhæstu 10 prósentanna og 84% til einstaklinga í efstu 30 prósentunum í tekjustiganum. Þetta er kunnuglegt stef, virðulegi forseti, enda keimlíkt tölum um nýtingu annars skattafsláttarúrræðis. Helmingur skattafsláttar vegna greiðslna séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán hefur líka runnið til efstu 10% í landinu. Þessari þróun er ekki lokið. Ef áætlanir ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur ganga upp verða tekjur ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu þær lægstu á öldinni eftir skattalækkanir undanfarinna ára sem hafa fjarlægt hátt í 50 milljarða kr. úr tekjugrunni ríkissjóðs. Það þarf ekki að fjölyrða um áhrif þessarar stefnu á velferðarkerfið miðað við stöðuna sem upp er komin.