152. löggjafarþing — 83. fundur, 1. júní 2022.
stéttarfélög og vinnudeilur.
272. mál
Virðulegur forseti. Þetta mál er að langflestu leyti alveg ágætt. Það standa bara eftir nokkur vafaatriði varðandi skipan í Félagsdóm. Það er mikilvægt að þau atriði séu hafin yfir allan vafa þannig að við fögnum því að verið sé að kalla þetta mál inn til nefndar. Við munum sitja hjá í þeim atkvæðum þar sem þetta á við, þessi ágreiningsefni, en að öðru leyti styður þingflokkur Pírata þetta mál.