staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Finnlands og Svíþjóðar.
Virðulegur forseti. Umsókn Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu, NATO, er mikið fagnaðarefni fyrir Ísland og Atlantshafsbandalagið í heild og undirstrikar mikilvægi þessa varnarbandalags lýðræðisþjóða í Vestur-Evrópu, bæði fyrir öryggi Evrópu og fyrir öryggi heimsins. Ég tel að þessi ríki séu vel að því komin að ganga í þetta bandalag og sýnir hversu mikilvægt það er.
Aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu 1949 var mikilvæg fyrir Ísland og sjálfstæði Íslands og fullveldi þess. Utanríkisstefna Íslands byggir á tveimur meginstoðum, aðildinni að NATO og varnarsamningnum við Bandaríkin. Það er þar sem við tryggjum fullveldi okkar sem ríkis, fullveldi okkar sem sjálfstæðs ríkis.
Mig langar aðeins að koma inn á það sem kom fram í umræðunni hér áðan en það er að flokkur forsætisráðherra er andsnúinn NATO-aðild. En hann styður hins vegar NATO-aðild Finnlands og Svíþjóðar en ekki eigin ríkis. Það er mjög sérstakt og er ákveðinn blettur á íslenskum stjórnmálum að það sé þannig að forsætisráðherra geti mælt með aðild tveggja vinaþjóða en ekki stutt aðild eigin ríkis. Það er ákveðin þverstæða sem þarf að svara og væri gott ef utanríkisráðherra myndi svara þeirri þverstæðu án þess að vitna bara til þjóðaröryggisstefnunnar. Ég veit að í öðrum ríkjum, eins og í Noregi hefur SV, sósíalíski vinstriflokkurinn, tekið til skoðunar hvort hann eigi að styðja Atlantshafsbandalagið eða ekki.
Aðild Svíþjóðar og Finnlands mun styrkja NATO gríðarlega mikið. Bæði ríkin hafa mjög öfluga heri og eyða miklu til varnarmála. Finnar eru t.d. með herskyldu og eftir fall múrsins minnkuðu þeir ekki útgjöld til hermála og eru með varaher, 200.000 manns, sem þeir geta kallað til. Svipað er hjá Svíum. Þeir eru líka með mjög öfluga hergagnaframleiðslu, framleiða eigin herþotur, kafbáta og vopn og þeir myndu vera gríðarlegur fengur fyrir varnarbandalagið til að verja Norðurlöndin og Skandinavíu og er það vel að þeir hafi þegar sótt um aðild að bandalaginu. Finnland hefur þurft að berjast fyrir sjálfstæði sínu og fullveldi. 30. nóvember 1939 réðst Stalín inn í Finnland, þremur mánuðum eftir upphaf síðari heimsstyrjaldarinnar. Það er margt líkt með finnska vetrarstríðinu og stríðinu sem nú er háð í Úkraínu. Mjög margt svipað. Finnland missti austurhéruð sín, Austur-Karelíu, í friðarsamningum sem luku stríðinu. Þeir háðu mjög hetjulega baráttu og var stríðið mikil niðurlæging fyrir sovéska herinn sem var að sjálfsögðu fyrst og fremst rússneski herinn. Það er ekki ólíklegt að svipað muni eiga sér stað núna, að núverandi stríði í Úkraínu muni verða lokið með friðarsamningum og engu öðru. Okkur ber að sjálfsögðu að styðja Úkraínu í því stríði með öllum tiltækum ráðum sem við höfum sem herlaus þjóð og ástæðan fyrir því að Svíþjóð og Finnland eru að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu er innrás Pútíns í Úkraínu, innrás Pútíns og rússneska hersins í fullvalda ríki, fullvalda, lýðræðislegt sjálfstætt ríki. Samskipti Finnlands við Sovétríkin og síðan Rússland eru mjög áhugaverð í sögulegu samhengi. Í dag eru Finnar hamingjusamasta þjóð í heimi, með gríðarlega flottan tæknigeira, mikla velmegun og háan lifistandard. Núna sjá þeir ekki fram á að geta treyst risanum í austri lengur þrátt fyrir að hafa getað gert það, lifað í sambúð við hann, með eigin herafla síðustu 70 ár. Þannig að þetta eru merkileg tímamót í sögu NATO að öllu leyti og þetta eru líka merkileg tímamót í sögu Norðurlanda eins og hæstv. utanríkisráðherra kom inn á. Núna er öll Norðurlöndin samankomin í Atlantshafsbandalaginu. Ástæðurnar fyrir því að Svíþjóð og Finnland voru ekki aðilar að NATO eru mjög áhugaverðar í sögulegu samhengi. Það sýnir þátttaka okkar eða aðild okkar að síðari heimsstyrjöldinni og hvað varðar Danmörku, Noreg og Ísland, sem var mjög mismunandi í öllum þremur ríkjunum. Hún var meira að segja ólík á milli Noregs og Danmerkur að mjög miklu leyti. Saman erum við nú öll komin í NATO og það þýðir að Norðurlöndin eru frá Grænlandi, nánast frá landamærum Kanada að landamærum Rússlands, í NATO. Þetta mun styrkja norrænt varnarsamstarf sem Ísland tekur vonandi þátt í að fullu leyti sem herlaus þjóð. Sem dæmi um vináttu Norðurlandanna má nefna það þegar Finnland hélt upp á 100 ára afmæli sjálfstæðis síns þá var mikil umræða í Noregi um að Noregur myndi gefa Finnlandi fjall, sem yrði þá hæsti tindur Finnlands. Það var fjallið Halti. Núna er hæsti tindur Finnlands 1.325 metra yfir sjávarmáli, sem er í hlíðum þessa fjalls, en hæsti tindurinn á fjallinu er innan landamæra Noregs, í 1.361 metra hæð. Það var því miður ekki hægt að gera og Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, sagði að það væri ekki hægt vegna m.a. stjórnarskrárinnar. En þetta sýnir hversu mikil vinátta og náin vinabönd eru meðal Norðurlandanna, sérstaklega Skandinavíu-landanna. Við eigum að taka enn þá meiri þátt í því samstarfi að öllu leyti.
Það virðist vera að öll ríki Atlantshafsbandalagsins styðji aðild Finnlands og Svíþjóðar. Tyrkland hefur gert athugasemdir við aðildina, sérstaklega varðandi Kúrda. En það eru atriði sem ætti að vera hægt að semja um að öllu leyti. Tyrkland er gríðarlega mikilvægur aðili að NATO með stærsta her NATO og er á þeim stað í heiminum sem er gríðarlega mikilvægur fyrir öryggi Evrópu, milli Asíu og Evrópu. Það er mikilvægt ríki. Ég tel að samningaviðræður þar á milli muni ekki standa í vegi fyrir aðild Finnlands og Svíþjóðar að nokkru leyti.
Hér hefur verið minnst á aðildarumsóknir Moldóvu og Georgíu og ég tel að þrátt fyrir landamæradeilur þá eigi NATO að samþykkja aðild þessara ríkja. Það er ekki hægt að Rússland sé að skemma aðildarumsóknir þessara ríkja með því að hafa landamæradeilur við þessi ríki. Það getur þá bara verið þannig að þau svæði verði varin sem eru algerlega innan fullveldisyfirráða stjórnvalda í Georgíu og Moldóvu. Ég hef sjálfur komið til Abkasíu, sem er vestasti hluti Georgíu, og það er glæsilegt svæði. Þetta er eins konar Monte Carlo Svartahafsins en efnahagsástandið er alveg hrikalegt. Það er allt út af pólitískri stöðu og óeiningu þar sem stórveldinu hefur tekist að kljúfa landshluta út úr Georgíu og efnahagsleg þróun hefur algerlega staðnað þar. Það er mikilvægt og ég skora á utanríkisráðherra að tala máli þessara ríkja á NATO-fundum. Ísland getur átt mjög mikilvægt framlag þar sem smáþjóð. Við höfum sýnt það, t.d. í mannréttindaráðinu, að þar getum við talað frjálslegar sem smáþjóð heldur en stórveldin og stærri þjóðir. Ef við tölum máli þessara þjóða við aðildarumsókn þá myndi það styrkja mjög stöðu smáþjóða eins og þessara þjóða. Þetta eru báðar lýðræðislegir þjóðir sem eru að reyna að þróa hagkerfi sín í átt að vestrænu hagkerfi og hefur tekist að mörgu leyti ágætlega en það er ákveðin stöðnun, t.d. í Moldóvu vegna svæðis sem heitir Transnistría þar sem rússneskir hermenn ráða ríkjum. En ég tel þessi ríki bæði vera vel að því komin að ganga í Atlantshafsbandalagið. Það er reyndar þannig að í stjórnarskrá Moldóvu er kveðið á um hlutleysi en það er þeirra vandamál að leysa úr því og þessi umsókn er velkomin og verður vonandi afgreidd sem fyrst.
Ég tel að rödd Íslands innan Atlantshafsbandalagsins sem herlausrar smáþjóðar eigi einmitt að heyrast vel hvað varðar borgaraleg réttindi og lýðræði og sérstaklega varðandi réttindi annarra smáþjóða. Ég vona að þessi umsókn verði afgreidd sem allra fyrst og hún á mikinn rétt á sér og er mikið fagnaðarefni fyrir Norðurlöndin, fyrir Evrópu og fyrir Atlantshafsbandalagið.