staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Finnlands og Svíþjóðar.
Frú forseti. Evrópa stendur nú á erfiðum tímamótum þar sem vegið er að grundvallargildum og stríð skekur álfuna. Það er mjög mikilvægt fyrir farsæla framtíð álfunnar að þjóðir hennar þjappi sér saman um stoðir lýðræðis, mannréttinda, friðar og öryggis fólks þar sem jafn réttur komandi kynslóða til mannsæmandi lífs og framtíðar er tryggður, þar sem sjálfsákvörðunarréttur þjóða er virtur og samskipti og úrlausnir markast af gagnkvæmri virðingu og friðsamlegum lausnum. Margar þjóðir upplifa nú margvíslegar fjölþáttaógnir með enn sterkari hætti en verið hefur í langan tíma og enn frekar vegna ógnaratburða undanfarinna mánaða samfara innrás Rússlands í Úkraínu og afleiðinga hennar sem ekki sér fyrir endann á. Nú hafa tvær vinaþjóðir okkar, Finnland og Svíþjóð, ákveðið að sækja um aðild að NATO. Þessar þjóðir hafa verið nánar okkur, hafa verið málsvarar friðar og verið lausnamiðaðar í alþjóðastjórnmálunum. Ísland og Norðurlöndin hafa lagt áherslu á að finna friðsamlegar lausnir hverju sinni og reyna að leysa deilur með friðsamlegum hætti. Sem formaður utanríkismálanefndar styð ég aðildarumsóknir Finna og Svía. Markast það ekki síst af því að hér eru vinaþjóðir okkar og nágrannar að sækja um aðild eftir að hafa komist að lýðræðislegri niðurstöðu, sem ég virði. Vænti ég þess að aðild þeirra muni hafa þau áhrif að bandalagið verði enn líklegra en áður til að leita friðsamlegra lausna, eins og Norðurlandaþjóðirnar hafa staðið fyrir. Utanríkismálanefnd Alþingis stendur einhuga á bak við þessi lönd í umsókn þeirra að NATO. Það kynntum við Finnum í ferð okkar til landsins nýverið og á fundum utanríkismálanefndar Finnlands og utanríkisráðherra landsins. Fyrir mitt leyti sem formaður utanríkismálanefndar legg ég áherslu á að þetta eru nágrannaþjóðir okkar sem tóku ákvörðun með lýðræðislegum hætti og tel ég að aðild þeirra muni hafa jákvæð áhrif á bandalagið auk þess sem hún mun styrkja stöðu okkar þar og þau sameiginlegu gildi sem við deilum með öðrum Norðurlandaþjóðum.