152. löggjafarþing — 83. fundur,  1. júní 2022.

staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Finnlands og Svíþjóðar.

715. mál
[16:46]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Já, þetta er merkilegur tími hér í þingsal og líka þegar mælt er fyrir stækkun NATO, varnarbandalags vestrænna lýðræðisríkja í þágu friðar og öryggis. Viðreisn styður eindregið umsóknir Svíþjóðar og Finnlands og að gerður verði samningur við þau þannig að þau verði aðilar að varnarbandalaginu. Ég vil taka undir með hv. formanni utanríkismálanefndar; innan nefndarinnar er alger samhljómur og þar hefur vinnan verkast vel.

Blóðug innrás Rússa í Úkraínu hefur gjörbreytt stöðu heimsmála og þeim áskorunum sem alþjóðakerfið stendur frammi fyrir. Það hefur haft miklar og langvarandi afleiðingar. Heimsviðskiptin hafa raskast, eins og allar þjóðir hafa fundið fyrir, og pólitísku áhrifin fara heldur ekki fram hjá neinum á þessum miklu óvissutímum. Heimsmyndin öll er gjörbreytt. Skapast hefur enn meiri togstreita milli stórvelda heimsins, togstreita milli lýðræðis og einræðisríkja. Þessi vaxandi spenna kallar á stóraukið samstarf vestrænna ríkja. Það eru vitaskuld miklir öryggishagsmunir í húfi en helst af öllu er það friðurinn sjálfur sem er í húfi. Innrás Rússa í Úkraínu er ekki síður árás á lýðræðið sjálft, sjálfstæð ríki og fullveldi þeirra, árás á gildi okkar sem viljum tryggja frelsi, réttlát og mennsk samfélög, og þá skipta traustar varnir, sterkt lýðræði og opin samfélög mestu máli. Lýðræðisþjóðir þurfa að koma sér saman með ríkari hætti um að tryggja betur eigið öryggi og standa vörð um eigin grunngildi. Þess vegna er vestrænt samstarf nú mikilvægara sem aldrei fyrr, því að það er einmitt á þessum tímum sem bandalagsþjóðirnar þurfa að standa saman. Þegar við sjáum friði og lýðræði ógnað með þessum hætti þá gefur það tilefni til endurmats á stöðu okkar og framtíð. Það gera Svíar og Finnar með umsóknum sínum sem við ræðum nú hér í þinginu í dag. Þær eru sögulegar og þess vegna er ekki hægt að gera annað en fagna þeim og það geri ég ákaft. Innrás Rússa í Úkraínu og grimmilegt ofbeldi þeirra þar í landi minnir okkur nefnilega á að friðurinn er ekki sjálfgefinn, því miður er það svo. Á það erum við reyndar minnt á hverjum degi þegar sífellt ógeðfelldari fréttir berast af stríðinu í Úkraínu. Þar hafa verið framin alvarleg mannréttindabrot. Innrásin er svo fyrst og fremst árás á almenning í Úkraínu, árás á daglegt líf alls almennings þar. Fórnarlömbin eru helst þeir tugir þúsunda sem látið hafa lífið og þær milljónir manna sem neyðst hafa til að flýja land. Innrásin skilur eftir sig sviðna jörð og afleiðingarnar af því er ofbeldi sem nú er framið og mun halda áfram að bitna á framtíðarkynslóðum í landinu. En innrásin er líka árás á gildi okkar um frelsi, lýðræði og mannréttindi. Í mínum huga er enginn vafi á því að grimmilegt ofríki Rússa gagnvart þessari grannþjóð á fyrst og fremst rætur að rekja í því að alræðisstjórnin hræðist það mest að sjá lýðræði dafna handan landamæranna. Rússlandi stendur ekki hernaðarleg ógn af Úkraínu eða öðrum grannríkjum en lýðræðisáhrifin, þau eru smitandi.

Við stöndum frammi fyrir þeim veruleika að það er ekki kostnaðarlaust að verja fullveldi landsins og fáar þjóðir eiga meira undir öðrum í því efni en við. Að sama skapi eru skyldur okkar til samstöðu meiri en annarra. Mikilvægt er að líta ekki á stríð í Úkraínu sem einangrað fyrirbæri. Þetta er ekki einn af þeim atburðum sem fanga hug okkar í nokkra daga eða vikur og heyrir svo gleymskunni til. Það má ekki gerast. Og Úkraínustríðið skrifast heldur ekki á einn vitstola mann. Pútín var einfaldlega að hagnýta sér veikleika lýðræðisþjóðanna í nýrri heimsmynd. Framtíðarsýn hans er að halda áfram svo lengi sem hann telur að lýðræðisríkin standi verr að vígi en alræðisríkin. Eftir síðari heimsstyrjöld höfðu Bandaríkin forystu um stofnun Atlantshafsbandalagsins. Það er varnarbandalag þjóða í Norður-Ameríku og Evrópu. Íslandi var boðin stofnaðild að bandalaginu á sínum tíma vegna hernaðarlegrar þýðingar landsins. Það var mikil framsýni að þiggja það boð og verða stofnaðili að NATO 1949.

Kjarninn í þjóðaröryggisstefnu okkar, sem samþykkt var samhljóða á Alþingi 2016, er aðildin að NATO og varnarsamningur við Bandaríkin. Þessi atriði eru sérstaklega tilgreind meðal þeirra atriða sem helst tryggja sjálfstæði, fullveldi og friðhelgi landamæra okkar Íslendinga. Og hafi einhver haldið að aðildin að NATO og varnarsamstarfið við Bandaríkin væri aðeins bókstafur á blaði og aðeins til marks um gamla sögu, hefur Úkraínustríðið gjörbreytt þeirri mynd. Þessi hornsteinn vestrænnar samvinnu hefur ekki verið meira lifandi veruleiki í áratugi en einmitt nú. Það skilja þær þjóðir sem mest er ógnað af því alræðisríki sem Rússland er nú um stundir Og hvaða leiðir velja þessar þjóðir? Val Eystrasaltsríkjanna er skýrt. Þau völdu að fara í ESB og NATO til að tryggja lýðræði, öryggi, farsæld, frelsi og velsæld. Finnar og Svíar gera það sama og það er alveg ljóst hvað þær þjóðir hafa valið, líka Moldóva, Georgía og Úkraína.

Ég vil hvetja, eins og ég gerði hér áðan, utanríkisráðherra til að beita sér fyrir því að leiðtogafundur NATO í Madríd núna í júní sendi þessum ríkjum mjög skýr skilaboð um að þau séu velkomin í bandalagið. Viðbrögð okkar við stríðinu í Úkraínu eiga því ekki að einskorðast við daginn í dag. Við þurfum að horfa fram í tímann, líkt og Finnar og Svíar hafa nú gert og Danir gera í dag með sínu skrefi, að þeir ætla sér að verða fullir þátttakendur í varnarhlutanum innan ESB með þjóðaratkvæðagreiðslunni — Danir fara í þjóðaratkvæðagreiðslu með sín mál, það væri gott ef það gilti það sama hér.

Það eru merkilegir tímar núna víða um heim. Við þurfum að þora að meta stöðu Íslands í nýju ljósi og tryggja framtíðarhagsmuni okkar Íslendinga á öllum sviðum. Á svona tímum er því mikilvægt að við Íslendingar tökum þau skref sem eru nauðsynleg til að tryggja varnir og öryggi þjóðarinnar. Samsetning ríkisstjórnarinnar, viðkvæmni og andstæðir pólar innan hennar þegar kemur að vörnum landsins mega ekki leiða til þess að við tökum lægsta samnefnarann í hagsmunagæslu fyrir Ísland, sérstaklega á þeim hverfulu tímum sem við búum nú við. Þjóðaröryggisstefnan var samin 2016. Við búum nú árið 2022 við innrás Rússa í Úkraínu, innrás í öryggi og þau lífsgildi sem við viljum verja. Við þurfum að taka afgerandi skref, skerpa á varnarsamningi okkar við Bandaríkin. Þó að það sé erfitt og viðkvæmt fyrir Vinstri græn að samþykkja það þá verðum við að taka upp þann samning, eiga samtal við Bandaríkin um að varnarsamningurinn taki ótvírætt á netárásum og árásum á innviði landsins, hvernig eigi að virkja samninginn, hvernig eigi að kalla til Bandaríkjamenn ef til árásar á okkur eða innviði okkar kemur. Og við þurfum að tryggja alla vega samtal um það hvað felist í þeim fælingarmætti að hafa hér viðvarandi veru varnarliðs á Íslandi, hvort sem það er í gegnum Bandaríkin eða í gegnum NATO-ríkin og vinaríki okkar. Þetta er samtal sem við verðum að taka þótt, eins og ég segi, það kunni að vera erfitt fyrir forystuflokkinn í ríkisstjórn að viðurkenna það.

Viðreisn hefur einn flokka, að mér skilst, lagt fram tillögur sem beinast að því að auka öryggi okkar og varnir núna á þessum hverfulu tímum og taka skref í þessa veru. Og það gerum við, eins og ég segi, með aukinni áherslu á aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu. Hvað getum við gert meira en við höfum gert núna? Auka miklu meira m.a. borgaralega þátttöku okkar innan NATO og taka upp varnarsamstarf við Bandaríkin og dýpka það og skerpa. En við þurfum líka í leiðinni að dýpka samstarf við Evrópusambandsþjóðirnar með fullri aðild Íslands. Sú aðild hefur að mínu mati aldrei — aldrei — verið brýnni. Það sama gildir um samstöðu með lýðræðis og vinaþjóðum okkar. Sú samstaða sem við sýnum hér í dag í þinginu með vinaþjóðum okkar, Svíum og Finnum skiptir gríðarlega miklu máli og það er gott að finna þá tóna að þeir eru skýrir, að við styðjum stækkun NATO. Það er enginn að tala um að henda Íslandi út úr NATO, það ætla ég að vona að verði ekki.

Því fleiri frelsis- og lýðræðiselskandi þjóðir, ekki síst smáþjóðir — það er mikilvægt fyrir okkur að standa saman fyrir frelsinu og fyrir öryggi og vörnum þjóða. Og þá skiptir máli fyrir okkur Íslendinga að vera í bandalagi þjóða, bæði í gegnum Evrópusambandið og ekki síður í gegnum NATO. Að vera með þessa skýru rödd, þennan hljóm sem hefur verið komið inn á hér áður. Hljóm um lýðræði, hljóm um það að við tölum óhrædd, óhikað fyrir mannréttindum og borgaralegum réttindum og jafnrétti hvar sem er, hvenær sem er, alltaf. Því að þó að við séum smá þá beitum við okkar rödd við borðið. Og þá er nú gott, eins og í NATO, að eiga örugga og trygga rödd við borðið.