152. löggjafarþing — 83. fundur,  1. júní 2022.

staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Finnlands og Svíþjóðar.

715. mál
[17:05]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það er gleðiefni að fá að ræða hér inngöngu vinaþjóða okkar, Svíþjóðar og Finnlands, í Atlantshafsbandalagið, stærstu útvíkkun bandalagsins í áratugi, og það er auðvitað alltaf gleðilegt þegar hér á þinginu fer fram þörf og uppbyggileg umræða. Aðdragandinn er hins vegar ekkert gleðiefni enda sækja löndin um inngöngu í NATO í beinu framhaldi af innrás Pútíns í Úkraínu, innrás sem svo margar vinaþjóðir okkar höfðu varað okkur við lengi en kom okkur samt svo á óvart. Innrásin hefur þjappað vestrænum lýðræðisríkjum saman og við tökum auðvitað fagnandi umsóknum þessara nánustu samstarfsríkja NATO í sterkasta varnar- og friðarbandalag heims. Aðdragandinn að aðildarumsókn landanna var þó aðeins lengri enda hafa þau þokast nær bandalaginu undanfarin ár með stöðugt nánari samvinnu. Þau hafa hins vegar lýst því sjálf að innrás Pútíns hafi valdið algjörri kúvendingu í þeirri afstöðu þjóðanna að vilja standa formlega utan bandalagsins. Landsmönnum þeirra sem eru fylgjandi aðild hafði farið fjölgandi fram að því hægt og bítandi en eftir innrásina hefur fylgnin rokið upp. Þessar þjóðir horfa til vina sinna og kollega í Eystrasaltslöndunum sem prísa sig nú sæl í faðmi NATO og hugsa með hryllingi til þess hver gæti orðið næsta fórnarlamb heimsvaldagræðgi Pútíns. Við sem erum stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu getum verið stolt af þátttöku okkar þar og framlagi þótt framlag herlausrar þjóðar sé eðlilega borgaralegt. En við erum auðvitað herlaus þjóð og hér er friðsælt að vera í skjóli öflugustu ríkja heims, í skjóli varnarsamstarfsins við Bandaríkin og í skjóli samstarfsins við NATO og í þessu skjóli ættu auðvitað allir að vilja vera. Þar vildi Úkraína glöð vera og þar vilja nú Svíþjóð og Finnland vera. Á meðan Úkraínumenn berjast fyrir lífi sínu og berjast fyrir sameiginlegum gildum okkar leggjum við okkar af mörkum hér í okkar friðsæla landi og í alþjóðlegu samstarfi. Við bjóðum vini okkar, Finna og Svía, því hjartanlega velkomna til enn nánara samstarfs á vettvangi NATO.