staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Finnlands og Svíþjóðar.
Virðulegi forseti. Ég þarf ekki að tíunda atburðarás síðustu mánaða og hvers vegna við erum stödd hér í dag að ræða mögulega aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu. Það er mikilvægt að virða sjálfsákvörðunarrétt þjóða sem vilja njóta góðs af sama bandalagi og við erum í og styð ég þessi tvö lönd til að taka ákvarðanir í utanríkismálum sem sjálfstæðar þjóðir. Það skiptir þó máli hvaða verði slík aðild yrði keypt en það verður ekki horft fram hjá því að forseti Tyrklands, einræðisherrann Erdogan, hefur lýst yfir andstöðu við umsóknirnar og haft uppi kröfur um framsal fjölmargra kúrdískra ríkisborgara til Tyrklands þar sem þeir munu eflaust sæta hrottalegri meðferð. Ég vona að hræðslan við stríðsrekstur Rússa verði ekki svo mikil að þessar systurþjóðir okkar fórni mannréttindum þessa hóps á altari öryggis og beygi sig því ekki undir þessa beiðni forseta Tyrklands um að framselja fólk sem hefur ekki sýnt af sér neitt saknæmt nema það eitt að vera Kúrdar. Það er mikilvægt að freistast ekki til að friðþægja slíka einræðisherra sem nota samþykki sitt sem vopn gegn þjóð sem hann fyrirlítur á grundvelli haturs á minnihlutahópi af öðrum þjóðernisuppruna. Ef Finnland og Svíþjóð ganga að kröfum Tyrklands setur það hættulegt fordæmi fyrir aðrar þjóðir sem kunna síðar að óska eftir aðild að bandalaginu. Ef Erdogan fær sínu framgengt setur það hættulegt fordæmi fyrir aðrar þjóðir sem síðar óska eftir inngöngu í bandalagið og gæti þannig valdið bakslagi í lýðræðislegum gildum og mannréttindum í hinum vestræna heimi. Alþingi á að styðja Finnland og Svíþjóð til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um sín utanríkismál en á sama tíma er mikilvægt að minna á mikilvægi þess að hafa lýðræðisleg gildi í fyrirrúmi við alla slíka ákvarðanatöku. Það er rétt að hafa áhyggjur af því að lýðræðisleg gildi og mannréttindi hljóta ekki nægjanlega vigt innan bandalagsins, ekki síst þegar lönd eins og Tyrkland eiga þar aðild.
Að lokum vil ég undirstrika mikilvægi þess að í utanríkisstefnu beiti Ísland sér alltaf fyrir auknum friði, gegn aukinni hernaðaruppbyggingu, hvort sem er á Íslandi eða í nágrannaríkjum okkar. Það er flókið markmið á ófriðartímum en mikilvægt engu að síður. Þrátt fyrir ástandið sem nú ríkir í Evrópu er það einlæg von mín að svo megi verða.