landlæknir og lýðheilsa.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir andsvarið. Varðandi persónuverndina þá segir í greinargerð með frumvarpinu:
„Frumvarpið er, eins og áður segir, samið í heilbrigðisráðuneytinu í samráði við embætti landlæknis og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Áform um lagasetningu voru enn fremur kynnt fyrir Persónuvernd.“
Persónuvernd skilaði ekki umsögn til nefndarinnar og gerði ekki athugasemdir. Varðandi skimunarskrána þá er þessi tilfærsla, sem frumvarpið mælir fyrir um, þ.e. flutningur skimunarskrár frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til embættis landlæknis, auðvitað mjög mikilvægur liður í að efla skimunarskrá og upplýsingaflæði frá þeim sem framkvæma skimanir til þeirra sem koma í skimanir og síðan til þeirra sem sinna rannsóknum sýna. Auðvitað hefði ég viljað sjá þessa tilfærslu og ábyrgð landlæknis á skimunarskránni koma til mun fyrr í þessu ferli. Að mínu áliti er þetta því mjög mikilvægt skref sem verið er að stíga hér.
Nefndin hefur rætt breytinguna á ferli krabbameinsskimana og átt fund með Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um stöðuna í dag og hefur þannig fylgst með því ferli án þess að ræða það sérstaklega í samhengi við þetta frumvarp.