landlæknir og lýðheilsa.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir og geri ráð fyrir að við fáum svör varðandi leghálsskimanirnar, í hvaða stöðu hún telji þær vera í dag. Ég var að lesa umsögn frá Persónuvernd sem áréttar nauðsyn þess að fyllsta öryggis verði gætt við vinnslu persónuupplýsinga í þessari umræddu skrá og að skýrt verði skilgreint í reglugerð ráðherra hvaða persónuupplýsingum heimilt verði að safna og varðveita í skránni. Síðan dregur Persónuvernd einnig fram að í frumvarpinu var framkvæmt mat á áhrifum á persónuvernd samhliða almennu áhrifamati í tengslum við frumvarpsgerðina og voru niðurstöðurnar síðan skráðar í greinargerðina eins og hv. þingmaður benti réttilega á. Persónuvernd tekur síðan fram að hún telji þetta vera vandað verklag og mætti framvegis hafa það sem fyrirmynd við setningu löggjafar þar sem huga þarf sérstaklega að persónuverndarsjónarmiðum. Persónuvernd skilaði frekar jákvæðri umsögn og undirstrikaði að vandað hefði verið til verka þegar að þessu kemur en dregur engu að síður fram að það verði að vera skýrt skilgreint í reglugerð ráðherra hvaða persónuupplýsingum verði heimilt að safna og varðveita í skránni. Mín brýning til hv. þingmanns og nefndarinnar um leið er sú að fara verði varlega þegar kemur að þessum viðkvæmu persónuupplýsingum eins og Persónuvernd dregur fram.
Síðan er það eitt af þessum stóru málum sem var að mínu mati hneisa fyrir ríkisstjórnina og það er hvernig staðið var að leghálsskimunum og það óöryggi sem því fylgdi fyrir stóran hóp kvenna. Ég veit að þetta mál tekur ekki á því en mig langar engu að síður að spyrja aftur og ítreka að hvaða leyti skimunarskráin getur þá tryggt gegnsæjar upplýsingar fyrir þennan hóp kvenna sem stendur í skimunum.