landlæknir og lýðheilsa.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið og mig langar að taka undir það sem hv. þingmaður fjallaði um þar. Það er mjög mikilvægt að boða fólk í skimanir. Ég tók dæmi um hvernig tannlæknarnir okkar gera. Ég veit að tannlæknirinn minn byrjar á því að senda mér SMS. Það kemur sjálfkrafa úr kerfinu hjá tannlækninum. Svo ef ég hringi ekki inn og panta tíma af því að tannlæknirinn sendi mér SMS þá lendi ég á lista þar sem tannlæknirinn byrjar að hringja í mig og bjóða mér að koma. Fyrir tannlækninn er þetta ákveðið viðskiptasamband, að tryggja að viðskiptavinurinn komi reglulega inn. En eins og hv. þingmaður benti á þá getum við verið að fylgjast með fullt af öðrum hlutum en bara krabbameini í tengslum við svona skimanir og við getum gert það sjálfvirkt. Þegar ákveðinn tími er liðinn frá því að þú komst síðast verður byrjað að ýta á þig. Ef þú hefur ekki komið í blóðprufu í eitt ár þá er þér boðið að koma á heilsugæsluna og fara í blóðprufu og ef eitthvað kemur út úr því þá hefur læknir samband við þig. Við höfum nýleg dæmi um þetta. Hvað gerðum við þegar við vorum að rekja smit vegna Covid? Jú, nafnið þitt lenti inn á lista af því að þú hafðir verið nálægt einhverjum og þá vorum við boðuð í Covid-próf og flest okkar mættu. Svo fengum við niðurstöðurnar nokkrum klukkutímum seinna. Það er ótrúlegt hvað er hægt að gera þegar við viljum keyra hlutina áfram.