landlæknir og lýðheilsa.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni. Það var einhvern tímann einhver vitur einstaklingur sem sagði: Það tekur mörg ár að byggja upp traust, það tekur nokkrar sekúndur að tapa því. Því miður, virðulegi forseti, veit ég ekki hvern ég er að vitna í. Það er nefnilega þannig að þegar fólk telur sig ekki geta treyst því að verið sé að vinna góða vinnu við að skima, eins og gerðist á tímabili þegar gögn voru að týnast og fólk fékk ekki svör mánuðum saman, þá hrynur að sjálfsögðu það traust sem fólk hefur á kerfinu. Því miður hefur það gerst að við höfum tapað þessu trausti og það þýðir að við þurfum að leggja mikla vinnu á næstu árum í að byggja það traust upp aftur. Þá er eins gott að vinnubrögð séu vönduð, að það sé rétt og góð stefna, að verið sé að nýta þetta til þess að bæta kerfið. Það er ekki nóg að safna gögnum bara gagnanna vegna. Það er líka dálítið hættulegt að vera að breyta því hver eigi að sjá um gögnin eða halda utan um þau. Þá töpum við oft eldri gögnum. Það getur leitt til þess að við sjáum ekki alla myndina heldur bara myndina síðan við fengum gögnin.