landlæknir og lýðheilsa.
Frú forseti. Ég sit í velferðarnefnd þingsins og hef tekið þátt í vinnu við þetta mál, er þar áheyrnarfulltrúi. Nafn mitt er ekki á nefndaráliti en ég styð þetta mál. Hér hefur komið fram hvaða tilgangi skimunarskráin þjónar og ég tel mikilvægt að komin sé skýr umgjörð þar um.
Ég nefndi það í ræðu minni hér í 1. umr. um málið að það kom mér á óvart að lesa í greinargerð með málinu að verið væri að skýra lagastoð í þessu sambandi. Ég vildi ítreka það sem ég hef áður nefnt í þessu sambandi, sem mér finnst þýðingarmikið þegar við erum að ræða um skimanir fyrir krabbameinum, að það er rakið í greinargerð þessa máls að tekin hafi verið ákvörðun um að ráðast í skimanir fyrir ristil- og endaþarmskrabbameini. Mér hefði þótt góður bragur á því og mikilvægt að þau skref yrðu útfærð, tímasetningar, fjármagn og um hvaða hópa er að ræða.
Ég tek undir með hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni, það var ánægjulegt að hlýða á hæstv. heilbrigðisráðherra í umræðu um þetta mál þegar hann mælti fyrir því. Hann tók vel í þetta en mér finnst enn vanta upp á að stjórnvöld séu markviss í þessu, að þetta séu meira en áætlanir og markmið. Til að markmið raungerist þurfa þau að vera tímasett, það þarf að liggja fyrir á hvaða hópum verður byrjað, hvert fjármagnið verður o.s.frv.
Ég nefndi krabbameinsáætlanir í andsvari áðan en eins og ég nefndi hafa alþjóðastofnanir um áratugaskeið hvatt lönd heims til að koma sér upp þeim krabbameinsáætlunum sem ná yfir þessa heildstæðu hugmyndafræði um það hvernig samfélög og heilbrigðiskerfið sinna forvörnum á þann hátt að það komi í veg fyrir krabbamein, hvernig við getum sem samfélag boðið upp á bestu mögulegu meðferð og síðan auðvitað að draga úr byrðinni af krabbameinum í samfélaginu og álagi á heilbrigðiskerfið og tryggja sem best líf og lífsgæði fyrir lifendur sem hafa farið í gegnum meðferð.
Ég hef líka talað um það áður í þessu sambandi að mér finnst varla hægt að koma hér upp og ræða um skimunarskrá án þess að rætt sé um krabbameinsdeildina á Landspítalanum. Það hefur verið ljóst í langan tíma hver staðan er og hver þörfin er á nýrri dagdeild blóð- og krabbameinslækninga á Landspítalanum. Ég held að allir sem hafa reynslu af því að sækja þá deild geti tekið undir það að aðstaðan þar mætti svo sannarlega vera langtum betri.
Mér er minnisstætt að ég las grein eftir framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins. Hún hvatti ríkisstjórnina til þess, á meðan á stjórnarmyndunarviðræðum stóð, að taka einfaldlega á þessum málum í stjórnarsáttmála eða sýn nýrrar ríkisstjórnar og hugmyndafræði varðandi heildstæða hugmyndafræði í þessum málaflokki.
Ég ætla að leyfa mér að nefna það aftur að ég hefði viljað sjá það gerast þegar ríkisstjórnin endurnýjaði heitin, og núna í samhengi við þetta mál hjá hæstv. heilbrigðisráðherra, að því hefði fylgt hugmyndafræði og aðgerðir, t.d. krabbameinsáætlanir, tímasett hvernig bæta mætti aðstöðu í þágu sjúklinga og starfsfólks og aðstandenda á spítalanum. Ég rifja það aftur upp að það hefur komið fram opinberlega að Krabbameinsfélagið hefur samþykkt að leggja á borðið tiltekna upphæð til þessa verkefnis með það að leiðarljósi að stjórnvöld setji það í forgang. Fyrir liggur framlag Krabbameinsfélagsins upp á 450 millj. kr. til þess að ýta við því að stjórnvöld setji fjármagn þar á móti.
Ég er ánægð með þetta mál og ég styð að það sé að verða að veruleika. Ég vildi fyrst og fremst koma upp til þess að nefna það í ljósi þess að ég er áheyrnarfulltrúi í þessari nefnd.