heilbrigðisþjónusta.
Virðulegi forseti. Mig langar að nýta tækifærið til að tala aðeins um stöðuna á Landspítalanum, kannski aðallega stöðuna sem umrædd stjórn yfir honum á að laga. Stjórnarinnar bíður náttúrlega gríðarlega erfitt verkefni ef fram fer sem horfir og þessi skipun stjórnar mun ekki laga grunnvandann á Landspítalanum sem er vanfjármögnun rekstrar spítalans. Þetta kemur mjög skýrt fram hjá stjórnendum spítalans, bæði þeim sem áður voru þar og þeim sem eru nýir. Við sáum þetta sem sitjum í hv. fjárlaganefnd síðast í umsögn þeirra um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem er þar til umræðu. Auðvitað er það þannig að oft má fara betur með fjármagn og líklega er það eitt stærsta verkefni þessarar stjórnar að hafa betri yfirsýn yfir hvernig nýta má fjármuni betur. En það er ótrúlega erfitt þegar það er undirliggjandi vanfjármögnun til staðar. Við höfum séð í umsögnum um stöðuna í heilbrigðiskerfinu að það er undirliggjandi rekstrarvandi. Það er skortur á úrræðum utan spítalans. Það liggur líka fyrir að fólk er bara langþreytt og örmagna eftir Covid. Fjármögnun spítalans hefur verið ótrúlega erfið. Það er ítrekað verið að slengja fram upphæðum fjármagns sem hefur verið sett í spítalann og heilbrigðiskerfið án þess að taka tillit til niðurskurðar á sínum tíma. Við erum að vinna upp alveg ótrúlega dæld í rekstri og fjárfestingu á spítalanum, vegna aukinnar hjúkrunarþyngdar vegna þess að þjóðin er að eldast og fólki er líka að fjölga. Það eru ný og dýrari verkefni sem hafa verið færð yfir á Landspítalann. Við höfum séð útreikninga sem taka tillit til þessarar hjúkrunarþyngdar, m.a. frá Gylfa Zoëga, prófessors við hagfræðideild Háskóla Íslands. Ef við lítum á svoleiðis mælikvarða, þar sem tekið er tillit til hjúkrunarþyngdar og nýrra verkefna, hefur fjármögnun til spítalans í rauninni hrunið.
Í þeirri fjármálaáætlun sem við erum núna að skoða og snertir beint spítalann — vegna þess að þar er risastór liður sem er sjúkrahúsþjónusta sem er að nær öllu leyti, 86%, fjármögnun á Landspítalanum — er gert ráð fyrir 1,5% í árlegan vöxt í málaflokk sjúkrahúsþjónustu út tímabil fjármálaáætlunar, sem er 2027, þrátt fyrir að það sé vitað mál að þetta hlutfall, 1,5%, er langt undir nauðsynlegum raunvexti. Spítalinn hefur talað um 2,5% og segir í sinni umsögn að það sé talan sem þurfi til að koma í veg fyrir að grunnrekstrarvandi spítalans vindi upp á sig, nokkuð sem stjórn á erfitt með að koma í veg fyrir. Það er vitað mál að einfaldur framreikningur í tengslum við öldrun, fólksfjölgun og hjúkrunarþyngd þýðir a.m.k. 2,5% aukningu á ári. Þannig að þetta er tölfræði sem við eigum að þekkja og hún er ekki leyst í núverandi áætlun ríkisstjórnarinnar. Þetta gerir það auðvitað að verkum að það er mjög erfitt fyrir spítalann að ráðast í neitt nema bara alger grunnverkefni. Það er sífellt verið að ausa bátinn. Síðan eru oft gerðar athugasemdir til stjórnenda spítalans um að það þurfi langtímastefnumótun og m.a. er verið að ræða um mikilvægi þess að vera með stjórn yfir spítalanum til að auðvelda slíka stefnumótun. En vandinn sem þessi stjórnvöld standa frammi fyrir ef þetta fjármögnunarlíkan heldur áfram er að þau munu bara eiga við þau verkefni að ausa vatni úr bátnum, ef þau fá ekkert öryggi til lengri tíma. Þess vegna skiptir svo gríðarlega miklu máli að samhliða svona umræðu um stjórn spítalans fari líka fram umræða um hvert stóra verkefnið í heilbrigðiskerfinu sé. Þetta vilja stjórnendur spítalans. Þeir vilja einmitt þetta svigrúm til langtímastefnumótunar vegna þess að það er svo erfitt að skipuleggja sig þegar fjármögnunin er óskýr. Þetta er lykilbreyta sem verður að horfa til. Við sjáum það bara svart á hvítu í núverandi áætlunum stjórnvalda að það mun mjög lítið breytast.
Virðulegi forseti. Um fjórðungur af rúmum á Landspítalanum er nú nýttur í öldrunarþjónustu. Það liggur hvergi fyrir samt hvert eðlilegt umfang öldrunarþjónustu á Landspítalanum ætti að vera. Það hefur verið kallað eftir því að verkefni séu skilgreind betur og það verður eflaust verkefni stjórnar að eiga það samtal við stjórnvöld, að það liggi fyrir hvað séu eðlileg verkefni sem Landspítala beri að sinna og hvaða fjármagn þurfi þá að fylgja. Landspítalinn stendur frammi fyrir því að verið er að vanfjármagna hjúkrunarheimili og uppbyggingu þeirra sem skilar sér þess vegna í meiri þrýstingi á Landspítalann. En það áhugaverða við þessa vanfjármögnun er að sparnaðurinn, hinn umræddi og svokallaði sparnaður, er auðvitað ekkert annað en frestun á útgjöldum sem vindur upp á sig. Þessi sparnaður sem fæst fram með því að sleppa því að byggja hjúkrunarrými og nýta áfram pláss á spítalanum skilar sér ekki í meira fé til Landspítalans. Þeir þurfa alltaf að taka við þeim sem til þeirra leita og ef þeir geta ekki útskrifað þá einstaklinga þá geta þeir það bara ekki. En spítalinn fær ekkert aukafjármagn til að sinna því þrátt fyrir að umræddur sparnaður sé annars staðar í kerfinu, jafn óskynsamlegur og hann er. Þetta vekur kannski einna helst athygli í samhengi við nýja skýrslu sem kom út hjá McKinsey um daginn um heilbrigðiskerfið, af því að okkur verður svo tíðrætt um þennan blessaða sparnað. Þar kom fram til að mynda að nýi Landspítalinn væri nú þegar sprunginn hvað varðar legurými — nýi Landspítalinn sem er ekki enn þá fullkláraður er nú þegar sprunginn hvað varðar legurými — ef ekki yrði fjárfest í úrræðum fyrir langtímaumönnun. Það kemur fram í skýrslunni að það þurfi að bæta við 240 úrræðum fyrir langtímaumönnun sjúklinga, eins og í heimaþjónustu, hjúkrunarrými og svo í endurhæfingu, til að spítalinn springi ekki um leið og hann opnar. Sparnaður við að ráðast í slíka aðgerð, segir McKinsey, er auðvitað sparnaður sem birtist ekki strax heldur með tíð og tíma, yrði heilt yfir fyrir heilbrigðiskerfið 1–2 milljarðar kr. og 9 milljarðar á Landspítalanum, 9 milljarðar kr. Í kringum 10% af því renna til Landspítalans á ári hverju, þeir 9 milljarðar sem gætu sparast með þessum úrræðum. Því veltir maður fyrir sér hvort þetta sé ekki einn af þeim hlutum sem hlýtur að vera tekinn til umræðu í yfirgripsmikilli yfirferð á heilbrigðiskerfinu og í samráði við vænta stjórn sem stjórnvöld eru hér að leggja til að verði skipuð, að það sé svigrúm til að ráðast í svona úrræði sem geta losað Landspítalann úr þeirri spennitreyju útgjalda sem hann er í. En það er ekkert um þetta í fjármálanefnd. Það er ekkert um þessi legurými í plönum stjórnvalda. Það er ekki tekið mið af athugasemdum frá McKinsey þrátt fyrir að þetta eigi að spara pening, marga milljarða. Raunar er það svo að eftir árið 2023 er næstum því engin fjármögnun til staðar í fjármálaáætlun stjórnvalda fyrir ný hjúkrunarrými.
Ég velti því fyrir mér hvernig þetta fellur að þeim markmiðum sem verið er að setja með umræddri stjórn, m.a. um að nýta fjármagn betur, ef kerfið spilar ekki með þegar það er vitað að það er langkostnaðarsamast að hafa fólk inni á Landspítalanum miðað við önnur legurými. Ég trúi í raun ekki öðru en að inn í 2. umr. fjármálaáætlunar, sem kemur hér fljótlega á dagskrá, komi meira fjármagn til spítalans til að ná yfir grunnreksturinn, til að draga úr umframkostnaði vegna þess að það er ekki pláss til að mynda fyrir eldri einstaklinga til að fara af spítalanum.
Við jafnaðarmenn munum auðvitað fylgjast gaumgæfilega með því hvort fjármagn komi inn í fjármálaáætlun til að standa undir byggingu þeirra hjúkrunarrýma sem lofað hefur verið af stjórnvöldum og er m.a. fjallað um í stjórnarsáttmála, af því að það er forsenda þess að m.a. það mál sem við ræðum hér í dag skili raunverulega einhverju, að hægt sé að reka spítalann með eðlilegum hætti og stjórnin geti myndað alvörutillögur til framtíðar, að ramminn í kringum heilbrigðiskerfið sé í lagi af því að Landspítalinn starfar ekki einn og sér heldur í kerfi sem þarf að virka.
Mig langar líka að vekja athygli á því sem er til umræðu í dag í hv. fjárlaganefnd og tengist málefnum Landspítalans beint og það er að Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa líka lýst áhyggjum af því að þjónustusamningar við hjúkrunarheimilin, sem er nýbúið að gera, séu ekki fullfjármagnaðir í nýjustu fjármálaáætlun. Ef þetta breytist ekki mun þetta mjög líklega hafa niðurskurð í för með sér sem mun draga úr getu þessara heimila til að taka við fólki og þar af leiðandi létta á vandanum og kostnaðinum sem er á Landspítalanum. Þannig að ég vona innilega að hæstv. heilbrigðisráðherra og hæstv. ríkisstjórn séu að líta til þessara þátta og við sjáum fjármagn koma inn í 2. umr. þess máls.
Í lokin langar mig til að segja að ég nefni þessa þætti með fjármögnunina sérstaklega vegna þess að hæstv. heilbrigðisráðherra hefur lýst því yfir í fjölmiðlum að það standi ekki á fjármagninu til að leysa vandann á spítalanum þegar fréttir um m.a. uppsagnir vegna óánægju berast. En þetta virðist ekki vera rétt, virðulegi forseti. Þetta virðist einmitt stranda á fjármagni. Við höfum fullt af punktum og athugasemdum sem snúa líka að langtímaáætlun stjórnvalda og loforðum til Landspítalans sem sýna svart á hvítu að þetta strandar á fjármagni.
Ég tel mikilvægt að halda þessu til haga, virðulegi forseti, svo mál líkt og hér er rætt um í dag, stjórn Landspítalans, fái ekki þá ásýnd og þá áru að hér sé komin lausn á vanda Landspítalans og það án fjármagns. Þetta er lítill hluti af risastóru vandamáli og vandinn í heilbrigðiskerfinu og á Landspítalanum verður ekki leystur með viðbótum á jaðrinum. Það þarf alvörubreytingar.