152. löggjafarþing — 83. fundur,  1. júní 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[19:29]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegi forseti. Þetta er áhugavert mál. Þegar við erum að ræða nákvæmlega þetta mál þá hljótum við auðvitað að tala um stærri myndina í leiðinni. Það er ástæða fyrir því að menn eru endalaust að slást við þá hugmynd hvernig best sé að koma málum fyrir þegar kemur að spítalanum okkar, þessari stóru og sjálfsagt að margra mati mikilvægustu stofnun landsins. Það hefur gengið á ýmsu með þessa stofnun í gegnum tíðina og heilbrigðiskerfið okkar í heild sinni. Við erum að takast á um þessa hluti í pólitíkinni á hverjum einasta degi. Það sem ég myndi vilja leggja fyrst inn í þessa umræðu er að við getum auðvitað verið gríðarlega þakklát fyrir það, hvort sem okkur finnst kerfið okkar vera rétt upp byggt eða ekki eða hvernig sem fjármögnun þess er háttað eða annað, að við eigum a.m.k. starfsfólk í kerfinu sem er algjörlega á heimsmælikvarða. Flestir þeir sem hafa þurft að nýta sér þjónustu spítalans — svo að við tökum hann sérstaklega fyrir — lýsa því, óháð aðstöðunni sem slíkri eða skorti á fjármagni sem æpir á mann í hverju horni, að þegar fólk leitar þangað inn, stundum á erfiðustu stundu lífsins, þá sé vilji starfsfólks til að gera vel alltaf mjög mikill. Við eigum að vera mjög þakklát fyrir það.

Einmitt þess vegna hljótum við að velta því fyrir okkur hversu öflug stjórn þarf að vera til að takast á við það sem ég vil meina að sé ákveðinn grunnvandi í þessu, hvort sem það kemur til út af fjármagni eða ekki, að fólk er út um alla stofnun að kikna undan álagi. Það fæst ekki til að vinna lengur, það er að segja upp.

Ég gerði það að gamni mínu þegar ég var að fara í þessa umræðu að ég tók bara fréttir síðasta sólarhringinn um ástandið á spítalanum. Mjög mikla athygli vakti færsla sem Soffía Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur skrifaði á Facebook og fjölmiðlar fluttu síðan fréttir upp úr og tóku viðtöl þar sem var verið að lýsa álaginu.

„Fjórir sögðu upp í dag: „Við erum búin að hrópa og kalla og biðja um hjálp.““ — Það er fyrirsögnin.

„Fjórir hjúkrunarfræðingar sögðu í dag upp störfum á bráðamóttöku vegna álags. Ein þeirra segir algjört ráðaleysi í heilbrigðismálum. Manneklan sé gríðarleg og hún telur ljóst að staðan eigi eftir að versna. Heilbrigðisráðherra segir að byggja þurfi upp innviði og styðja við þá takmörkuðu auðlind sem heilbrigðisstarfsfólk er. Mikil áskorun sé þó fram undan.“

Þarna orðar hæstv. heilbrigðisráðherra hugsun sína örugglega frekar varlega. Það er meiri háttar vandi sem blasir við þessari stjórn og það hlýtur að eiga að vera hennar helsta verkefni sem faglegrar rekstrarstjórnar að taka á þessu. Þar komum við að fjármagni, þar komum við að strúktúrnum og uppbyggingu spítalans í heild sinni og svo kannski bara þeirri mannauðsstefnu sem þarf að byggja þar upp, að fólk sem hefur þá köllun að vilja vinna í heilbrigðiskerfinu og á spítalanum geti sinnt því starfi þannig að sómi sé að án þess að keyra sig út á fáeinum árum vegna álags og jafnvel fyrir laun sem eru ekkert sérstök. Það er kannski hryggjarstykkið í því sem blasir við þessari stjórn. Við getum svo farið fram og til baka með það hvernig eigi að manna slíka stjórn.

Í greinargerðinni kemur fram, með leyfi forseta:

„Markmið frumvarpsins er að styrkja stjórn stærstu heilbrigðisstofnunar landsins, Landspítala, með því að veita lagastoð fyrir því að stjórn verði skipuð yfir spítalann sem gegni því hlutverki að tryggja frekari faglegan rekstur spítalans.“

Svo var litið til stjórnskipulags sjúkrahúsa á hinum Norðurlöndunum og þar voru hlutir auðvitað með misjöfnum hætti eins og rakið er í greinargerðinni. Síðan segir í greinargerðinni:

„Helstu nýmæli sem felast í frumvarpinu eru að stjórn verði sett á stofn yfir Landspítala. Stjórninni verði ætlað að eiga ríkt samstarf við forstjóra stofnunarinnar sem og ráðherra heilbrigðismála um stefnu og rekstur stofnunarinnar. Stjórninni er ætlað, í samráði við forstjóra, að marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra og hlutverk stofnunarinnar samkvæmt lögum. Henni er einnig ætlað að yfirfara árlega starfsáætlun hennar og ársáætlun og leggja sjálfstætt mat á þær og þau markmið og mælikvarða sem þar eru sett fram og gera ráðherra grein fyrir mati sínu innan tveggja vikna frá því að ársáætlun hefur verið lögð fyrir ráðherra til samþykktar. Þá er stjórninni ætlað að taka afstöðu til ákvarðana sem eru mikils háttar eða óvenjulegar í starfsemi stofnunarinnar, svo sem varðandi skipurit stofnunarinnar.“

Það er því greinilegt að þarna á að taka til hendinni og fara svolítið djúpt ofan í málin og við hljótum að fagna því.

Ég nefndi áðan frétt af bráðamóttökunni og gleymdi í því samhengi að nefna að þar var líka viðtal við Hjalta Má Björnsson yfirlækni sem margoft hefur komið í fjölmiðla og talað um ástandið bara á þeirri deild. „Ástandið hið versta í sögu bráðadeildar“ — en þessa fyrirsögn sjáum við alltaf aftur og aftur. Niðurstaðan í þeirri frétt var eiginlega að ástandið væri að versna. „Við höfum verið að fækka sjúkrarúmum á meðan fólki fjölgar.“

Þetta er kannski stóra verkefnið sem blasir við þegar þessi stjórn á að taka til starfa. Auðvitað þarf hún síðan að hafa almennilegt, svo að ég sletti nú, „back up“ frá stjórnvöldum sem þurfa þá svolítið að hlusta eftir því þegar verið er að greina og leggja mat á það hvers konar fjármunum stofnunin hefur yfir að ráða. Ég ætla að fullyrða það hér að þegar ráðamenn og ráðherrar í ríkisstjórninni hafa komið fram og talað um að vandi spítalans sé ekki fjárhagsvandi heldur eitthvað annað, mönnunarvandi eða eitthvað slíkt, þá er það mikil einföldun á málinu.

Eins og ég rakti í andsvari áðan þá er ábyrgðin á ástandinu í sjálfu sér alltaf á sama stað, hvort sem það er fjármagnið eða mönnunin. Hún hlýtur að vera mikil hjá heilbrigðisráðherra á hverjum tíma, hjá forsætisráðherra, stjórnvöldum og auðvitað hjá fjármálaráðherra á hverjum tíma. Ég minni á að þeir þrír flokkar sem fara núna með stjórn landsins hafa verið í því hlutverki í fimm ár, síðan árin á undan Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur og sami einstaklingur og sami flokkur hefur verið með fjármálaráðuneytið óslitið frá árinu 2013. Það er því alveg skýrt hvar ábyrgðin á ástandinu liggur. Þess vegna er það svolítið dapurlegt, bæði þegar við erum að ræða þetta mál og auðvitað önnur, að það skuli alltaf einhvern veginn vinnast þannig að menn séu meðvitaðir um vandann og vilji gera betur og betur en árin hlaðist síðan upp og vandinn leysist ekki. Auðvitað er það svo, svo að við séum nú sanngjörn, að við finnum aldrei hið fullkomna heilbrigðiskerfi en við getum gert svo miklu, miklu betur. Ég ætla því alveg að vera jákvæður gagnvart því að þessi stjórn sem til stendur að skipa yfir spítalann geti verið gæfuspor.

Í greinargerðinni er rakið að það er svolítið verið að hringla með þetta fram og til baka og verði þetta að veruleika erum við aftur að fara í það sem gilti að einhverju leyti á árum áður. Ég held að þetta snúist hins vegar alltaf um að svona stjórn getur ekkert gert ef hún hefur ekki stjórnvöld, ríkisstjórn, heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra, sem hafa djúpan og góðan skilning á þeim vanda sem blasir þarna við.

Ég vildi gjarnan nefna líka í þessu samhengi að auðvitað fylgja umsagnir þessu frumvarpi og ég trúi því og treysti að velferðarnefnd hafi vandað sig mjög við vinnuna í nefndinni. Ég vil gjarnan staldra svolítið við umsögn Landssamtakanna Geðhjálpar. Ástæðan fyrir því að ég staldra þar sérstaklega við er skýrsla Ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi, svo að ég fari aðeins í gegnum það, en þar kemst Ríkisendurskoðun að þeirri niðurstöðu, eftir nokkuð góða skoðun — og við eigum eftir að ræða þá skýrslu hér í þinginu í næstu viku, held ég að séu áform um, þetta snýr ekki bara að spítalanum en hann er auðvitað hluti af þessu — að vægi geðheilbrigðisþjónustu aukist ár frá ári innan heilbrigðiskerfisins en fjármagnið fylgi ekki — það var nú ein stór niðurstaða — og að gatið þar á milli sé alveg himinhrópandi stórt. Stefnumótun í málaflokknum hefur verið rýr. Verið er að gera alls konar aðgerðaáætlanir, úttektir og skýrslur og árangur af því hefur verið ófullnægjandi. Það eru grá svæði hér og þar í geðheilbrigðisþjónustunni; mannekla, skortur á sérhæfðu starfsfólki, biðlistar, margir sem búa við skert aðgengi að þjónustunni, — ég er nú að hlaupa yfir þetta og árétta að þetta snýst auðvitað ekki bara um spítalann heldur kannski geðheilbrigðiskerfið í heild sinni — það er skortur á hjúkrunarfræðingum og geðlæknum og verkefnum fjölgar eins og ég rakti. Það væri hægt að halda enn lengri ræðu um þetta allt saman.

Í því ljósi langar mig að nefna það sem Geðhjálp nefnir í umsögn þegar kemur að stjórn spítalans. Hún nefnir að þar sitji fulltrúar notenda. Ég vitna orðrétt í umsögnina:

„Það verður að teljast gamaldags viðhorf að í frumvarpi heilbrigðisráðherra sé gert ráð fyrir tveimur fulltrúum starfsmanna í stjórn spítalans en engum fulltrúa notenda. Því miður hefur ekki verið hlustað á raddir notenda í gegnum árin“ — sem er auðvitað ástæðan fyrir því að ég nefni þetta með skýrslu Ríkisendurskoðunar— „sem aftur hefur gert þjónustuna verri og tafið fyrir bata fjölda einstaklinga.“

Það er auðvitað gríðarlega alvarlegt að heyra „tafið fyrir bata fjölda einstaklinga“ vegna þess að ekki er hlustað á notendur kerfisins. Þetta hljótum við að þurfa að hlusta svolítið vel á.

Síðan segir áfram: „Að undanförnu höfum við heyrt fréttir af málum þar sem ekki var hlustað á notendur heilbrigðiskerfisins með sorglegum afleiðingum. Þessi mál hafa komið upp á ýmsum deildum og stigum heilbrigðisþjónustunnar og eru til marks um hve mikilvægt það er að hverfa frá stefnu valdaójafnvægis á milli notenda þjónustunnar og þeirra sem veita þjónustuna í kerfinu.“

Svo er verið að leggja fram breytingar. Tillaga Geðhjálpar er að ráðherra skipi sjö manna stjórn Landspítala og tvo til vara til tveggja ára í senn.

„Skal einn skipaður formaður stjórnar og annar varaformaður. Tveir stjórnarmanna skulu vera a) fulltrúi starfsmanna og b) fulltrúi notenda báðir þessir stjórnarmenn eru með málfrelsi og tillögurétt, án atkvæðisréttar. Fulltrúi notenda er valinn af notendaráði …“

Auðvitað getum við, eins og ég sagði í upphafi, farið lengi yfir það hvernig best er að skipa svona stjórn en einmitt vegna þess hve staða geðheilbrigðismála er bágborin í kerfinu okkar og inni á spítalanum líka vil ég a.m.k. leggja það til að við hlustum sérstaklega eftir því sem Geðhjálp hefur að segja í þessu. Þetta er auðvitað ekki bara sá sjúklingahópur sem upplifir að reynsla notenda kerfisins sé kannski ekki virt eins mikils og gera ætti þegar við erum að velta fyrir okkur hvernig kerfin eiga að vera uppbyggð. Þessi kerfi eru fyrir notendur þjónustunnar. Kerfin eiga ekki að þjóna starfsmönnum, starfsstéttum, yfirstjórn eða einhverjum óræðum pólitískum markmiðum ef þau eru önnur en að gera kerfið gott fyrir notendurna. Í því ljósi myndi ég gjarnan vilja nefna breytingartillögu sem liggur fyrir og kemur frá Oddnýju G. Harðardóttur, Guðmundi Inga Kristinssyni, Halldóru Mogensen og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.

„Jafnframt skal ráðherra skipa tvo áheyrnarfulltrúa úr hópi starfsmanna Landspítalans og einn fulltrúa úr notendaráði með málfrelsi og tillögurétt, án atkvæðisréttar.“ — Svo að það sé nú allt saman nefnt.

Ég satt best að segja vona heitt og innilega að hvort sem þessi stjórn verður til bóta eða ekki, og ég ætla kannski að gera það að því síðasta sem ég segi í þessari ræðu, fari ríkisstjórnin að taka alvarlega að ástandið í heilbrigðismálum þjóðarinnar er ekki nógu gott. Það þýðir ekki að tromma upp fyrir kosningar, eins og t.d. var gert fyrir síðustu kosningar, og tala um að blásið hafi verið til stórsóknar í geðheilbrigðismálum. Við erum bara með gögn og úttektir sem sýna fram á að það er ekki reyndin, það er langur vegur frá. Þar vil ég meina að menn hafi verið að skreyta sig með stolnum fjöðrum, upplognum fjöðrum getum við alveg sagt. Við opnum ekki fjölmiðil, horfum ekki á sjónvarp, fréttatíma, lesum ekki blað eða flettum vefmiðli öðruvísi en að þar séu einhverjar sögur innan úr kerfinu okkar sem eiga ekki að vera. Við eigum ekki að hafa svona mikla þolinmæði fyrir því án þess að grípa til alvarlegra aðgerða.

Það var ágætt að heyra mál hv. þm. Kristrúnar Frostadóttur sem kom svolítið inn á kjarnann í þessu öllu saman, forvitnileg ræða sem hv. þingmaður flutti hér áðan, og var þá að tala um hvað væru lítil merki í fjármálaáætlun um að menn bæru skynbragð á hvað vandinn væri mikill og hversu mikið þyrfti að gefa í til þess að betur mætti fara. Það á auðvitað við um spítalann og það á auðvitað við um heilbrigðisstofnanir úti á landi og önnur stig heilbrigðisþjónustunnar en bara spítalann. Í því samhengi var nefndur skortur á hjúkrunarrýmum, sem einn og sér er auðvitað gríðarlegur vandi og hefur margoft verið bent á en virðist lítið ganga að bæta úr en er einmitt sá vandi sem er kannski ein helsta ástæðan fyrir því að greinar eins og ég var að vitna til áðan birtast í blöðunum þegar allt teppist inni á bráðadeild aftur og aftur, fólk liggur í öllum skúmaskotum, margir í hverju herbergi, inni á göngum og alls staðar, vegna þess að ekki er hægt að koma fólkinu áfram yfir á yfirfullar deildir sem svo eru yfirfullar vegna þess að ekki er hægt að koma fólki yfir í önnur úrræði. Þetta er auðvitað bara keðja. Þegar einn hlekkur keðjunnar er ekki í betra lagi þá auðvitað hefur það áhrif á allt hitt.

Mér finnst, þegar við erum að ræða það mál sem núna liggur fyrir, velta fyrir okkur hvernig best sé að stýra Landspítalanum með stjórn og þá hvernig eigi að skipa þá stjórn, að eftir höfðinu dansi limirnir. Það er til lítils að fara í svona breytingar ef ekki er vitneskja á æðstu stöðum og áform um það og skilningur meðal ráðamanna þjóðarinnar á því að vandinn er gríðarlega alvarlegur. Það að verið sé að byggja nýjan spítala mun svo sannarlega ekki leysa allan vandann þótt að sjálfsögðu vonumst við til þess að eitthvað lagist.

Ég ætla aftur að koma að því sem ég nefndi hér áðan. Mér finnst að stóri vandinn og stóra úrlausnarefnið hjá þessari stjórn hljóti eiginlega að vera að finna út úr því hvernig hægt er að gera vinnuumhverfið þarna manneskjulegra þannig að við séum ekki að sjá þessar fréttir dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár: Fjórir sögðu upp í dag. Við erum búin að hrópa og kalla og biðja um hjálp. Þetta er heilbrigðiskerfið okkar að einhverju leyti í hnotskurn. Auðvitað er margt gott þar en við viljum ekki sjá svona fréttaflutning dag eftir dag og viku eftir viku.

Það er orðið tímabært að stjórnvöld vakni til vitundar um að ástandið er grafalvarlegt, að menn geri gangskör í því að auka fjárveitingar til bæði spítalans og annarra anga kerfisins. Ég vil árétta það sem ég sagði áðan, mér finnst að geðheilbrigðismálin hljóti að vera eitt það sem menn þurfa að horfa sérstaklega vel til og þá í samhengi við þessa skýrslu sem við ætlum að ræða í næstu viku, vona ég að sé rétt.