152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

frumvarp um endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar.

[10:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það hefur kannski farið fram hjá sumum en við höfum á undanförnum árum verið að gjörbreyta verklaginu við kostnaðarmat frumvarpa. Nú er það þannig að það eru fagráðuneytin sem sjálf bera alla ábyrgð á því að kostnaðarmeta fram komin mál. Þó er sú regla viðhöfð að fjármálaráðuneytið hafi að jafnaði tvær vikur til að fara yfir mat fagráðuneyta. Þó að þær tvær vikur hafi ekki gefist í þessu tilviki komu samt sem áður fram ábendingar frá fjármálaráðuneytinu um að gjaldaliðurinn, sem í þessu tilviki er vistaður í þessu fagráðuneyti, gerði ekki ráð fyrir útgjöldum sem myndi reyna á ef frumvarpið yrði samþykkt. Ekki var tekið tillit til þess í greinargerð með frumvarpinu eins og það fór í gegnum ríkisstjórnina. Þar vakti ég reyndar athygli á því.

Síðan fer málið hingað til þingsins og fyrirspurn berst til embættismanns í ráðuneytinu um það hvernig þessu sé háttað. Þá er eðlilegt að menn bregðist við. Í raun og veru snýst þessi umræða eingöngu um þetta: Er á útgjaldaliðnum, sem er vistaður í menningar- og viðskiptaráðuneytinu, nægilegt svigrúm til að fullnægja þeirri þörf sem mun skapast verði frumvarpið samþykkt sem lög? Það er eina spurningin sem skiptir hér máli og fjármálaráðuneytið er bara að vekja athygli á því, er ekki með neinar efnislegar athugasemdir við það mál, að útstreymi til að endurgreiða kvikmyndaframleiðendum mun stöðvast á því að ekki verði fjárheimildir á fjárlagaliðnum. Mönnum kann að þykja þetta óeðlilegt en það getur auðvitað gerst að það komi upp ólík sjónarmið um það hvort fagráðuneytið eða fjármálaráðuneytið hafi rétt fyrir sér. Ég er reyndar í engum vafa um að fjárlagaliðurinn er ófullnægjandi.