frumvarp um endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar.
Herra forseti. Það er á hæstv. ráðherra að heyra að þetta frumvarp sé augljóslega gallað en einnig gerir ráðuneytið mjög verulegar athugasemdir við hvernig það var unnið. Ég ætla hins vegar að nota seinni spurninguna til að spyrja hæstv. ráðherra út í allt annað. Það er óþarfi að rekja hér þá umræðu sem hefur átt sér stað að undanförnu um fasteignagjöld sem hæstv. ráðherra eflaust þekkir. Telur hæstv. fjármálaráðherra tilefni til að endurskoða með hvaða hætti fasteignagjöld eru lögð á af hálfu sveitarfélaga í ljósi þess hvernig þessi gjaldtaka hefur þróast, enda var henni ætlað að standa undir kostnaði en ekki að vera aukatekjulind sem í ofanálag ræðst nú í auknum mæli af nánast tilviljanakenndum hlutum?