frumvarp um endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar.
Virðulegi forseti. Þessi tiltekni gjaldstofn er til umræðu vegna þess að fasteignamat í landinu hækkar mjög mikið og þá verður þetta svo kristaltært, þá kemur svo skýrt fram að við erum að tala um skattstofn þar sem fasteignaeigandinn þarf að taka á sig alla hækkun fasteignamatsins sem þó hefur á engan hátt neitt með það að gera að viðkomandi hafi meiri tekjur til að standa undir skattinum. Það eru að sjálfsögðu bestu skattarnir okkar sem taka tillit til þess, eru eitthvert hlutfall af tekjum. Hitt er í raun og veru einhvers konar eignaupptaka þegar prósentan er orðin of há. Og já, ég tel að þetta sé meingallað kerfi og lýsir sér best með því að hjá sumum fyrirtækjum er kannski enginn tekjuvöxtur en skattgreiðslan á að hækka um 20% ef menn ætla ekki að hreyfa við prósentunum. Þetta er ósanngjarnt og gengur örugglega mjög nærri mörgum fyrirtækjum.