152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

aðild að Evrópusambandinu.

[10:43]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og ráðleggingar og verð því miður að segja að þær mínútur sem ég hef hér duga ekki til að veita hæstv. ráðherra og ríkisstjórninni ráðleggingar um hvernig þau ættu að breyta um kúrs og nálgun sinni varðandi Evrópusambandið. En við tökum það samtal síðar.

Það er mikilvægt að við hættum að einblína á viðskiptamál í allri umræðu um Evrópu, um aðgang að mörkuðum. Evrópusambandið var stofnað til að tryggja frið í álfunni. Það er verkefni sem kallar á samstarf á mörgum sviðum, ekki bara varðandi verslun og viðskipti heldur einnig lýðræði, mannréttindi, þróunarstarf og ekki síst varnir gegn utanaðkomandi ógnum. Eitt af því sem Danir munu styrkja nú til muna með því að taka þátt í varnarsamstarfi Evrópusambandsins er aðstoð í netöryggismálum. Við vitum að stríð framtíðarinnar munu verða háð með öðrum þætti en við þekktum áður. Við erum þegar farin þangað og við vitum líka að eitt af brennandi verkefnum okkar fram undan er að tryggja varnir okkar í netöryggismálum. Þetta er verkefni sem við munum ekki ráða við ein okkar liðs og eins og staðan er í dag erum við býsna berskjölduð ef við yrðum fyrir barðinu á slíkum árásum. Þannig að ég spyr hæstv. ráðherra: Telur hann að aukið samstarf við Evrópusambandið gæti bætt varnir okkar þar þó svo að hún hafi ekki mikið álit á Evrópusambandinu sem varnarbandalagi að öðru leyti?