aðild að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að netöryggismál eru vaxandi verkefni fyrir öll ríki og það er einmitt þess vegna sem við erum í miklu samstarfi bæði í Tallinn og Helsinki, sem skiptir okkur miklu máli og við fáum margfalt meira út úr slíku samstarfi en við sjálf leggjum inn. Það er rétt hjá hv. þingmanni að við getum ekki sem eitthvert eyland byggt upp alla þá þekkingu sem við þurfum og við eigum að gera það í samstarfi við aðrar þjóðir. Evrópusambandsaðild kemur því máli ekkert við. Við erum í fullum færum um að efla slíkt samstarf og taka þátt í því, hvort sem það er öndvegissetur eða annað, án Evrópusambandsaðildar. Varðandi ákvörðun Dana þá erum við náttúrlega ekki með neitt sambærilegt hér þannig að það þarf enga þjóðaratkvæðagreiðslu um slíkar breytingar vegna þess að þetta er ekki vandamál hér. En ákvörðun Dana breytir engu um norrænt varnarsamstarf eða samstarfið innan NATO, þannig að það sé nefnt. (Forseti hringir.) Þannig að jú, það er verkefni fyrir okkur að bæta okkur frekar í netvörnum, en það getum við svo sannarlega gert án Evrópusambandsaðildar.