orkuskipti og raforkuöryggi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Eins og margoft hefur komið fram en er sjálfsagt að endurtaka, þá var það eitt af mínum fyrstu verkum að setja á stofn raforkuöryggishóp sem er að fara yfir nákvæmlega þessa þætti sem hv. þingmaður vísaði til. Það er kannski auðvelt um að tala en hins vegar er þetta bara þess eðlis að það borgar sig að vanda sig og fara vel yfir það. Við þekkjum það að þegar við breyttum lögunum fyrir rúmlega — ja, það er orðið ansi langt síðan, hátt í áratugur síðan, þá var það aðkallandi að líta sérstaklega til þessara þátta. Það er það sem ég setti strax af stað. En ég legg hins vegar áherslu á í þeirri vinnu að menn taki þann tíma sem þarf til að ná niðurstöðu sem við getum verið sátt við því að það er auðvitað markmiðið að tryggja sérstaklega öryggi heimila þegar að þessum málum kemur. Og síðan varðandi það að leggja mat á þessar sviðsmyndir þá liggur það alveg fyrir og hefur legið fyrir nokkuð lengi að það er mikil eftirspurn eftir grænni orku, sérstaklega til orkuskipta, og það er mikilvægt að framboðið sé til staðar. Ég veit ekki um neinn einstakling sem treystir sér til þess að segja okkur hvernig hlutirnir verði á þessum tíma sem við erum að ræða og maður sér á hverjum degi, ég get nokkurn veginn sagt í það minnsta í hverri viku, tækninýjungar og nýjar útfærslur sem er komnar misjafnlega langt á veg. Aðalatriði málsins er þetta: Við erum að fara í orkuskiptin og við höfum unnið skipulega að því og munum halda því áfram og það er mjög mikilvægt að þegar við tökum út bensín og dísil þá höfum við græna orku í staðinn.