orkuskipti og raforkuöryggi.
Hæstv. forseti. Ég þakka ráðherranum svörin svo langt sem þau náðu. Já, mér er kunnugt um raforkuöryggishópinn og hafði kannski haldið að það væri komið að því að fá tillögur hans til umfjöllunar hér á hinu háa Alþingi eða alla vega opinbera þær þannig að þær væri hægt að ræða. Tíminn vinnur sannarlega ekki með okkur í þessum mikilvæga málaflokki og eins og hæstv. ráðherra bendir á er eftirspurnin mikil. Hún er auðvitað næstum því óendanleg. Þess vegna skiptir svo miklu máli að við sjálf ákveðum, innan rammaáætlunar, t.d. orkustefnu með því að tryggja raforkuöryggi, hvernig við ætlum að verja þeirri orku sem framleidd er hér á landi. Hún er líklega það verðmætasta sem við erum að framleiða um þessar mundir og við verðum að hafa þau tæki og tól innan laga, reglugerða og áætlana okkar sem gera það að verkum að við getum beint henni á rétta staði, sem sagt í orkuskiptin.
Ég ætla að nota tækifærið hér og inna (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra eftir því hvort hann deili áhyggjum mínum af því að eitt púslið í þessa (Forseti hringir.) mikilvægu mynd sem vantar núna er þriðji áfangi rammaáætlunar. Þurfum við ekki að afgreiða hana í vor?