152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

orkuskipti og raforkuöryggi.

[10:51]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir fyrirspurnina. Í fyrsta lagi get ég alveg lofað því að þegar niðurstöðurnar koma um raforkuöryggisógnina verður það ekkert leyndarmál. Að sjálfsögðu kemur það til kasta þingsins með einhverjum hætti. Því meiri umræða sem er um þessi mál, þeim mun betra. Ég hvet því hv. þingmann og alla aðra þingmenn til að nota hvert tækifæri til að fara í sérstaka umræðu við mig eða ræða við mig um þessi mikilvægu mál. Ég fagna fyrirspurnum.

Hv. þingmaður spyr hvort ekki sé mikilvægt að klára rammann. Jú, það er líka mikilvægt að klára frumvarpið um einföldun regluverks um stækkun virkjana. Það er líka mikilvægt að klára frumvarpið um orkusparnaðinn, það sem nefnt hefur verið varmadælufrumvarpið. Það er mjög mikilvægt til að við náum þeim markmiðum sem lagt var upp með. Eitt er alveg víst, og það er alveg öruggt, að ef við tökum út bensín og dísil, og við ætlum að gera það, þá þurfum við að fá græna orku í staðinn. Það liggur alveg fyrir hver forgangur okkar er. Það eru orkuskiptin. Að því gefnu að við verðum með græna orku þá er ekkert því til fyrirstöðu að það markmið náist.