ylræktargarður.
Herra forseti. Ljóst má vera að skjóta ber nýjum stoðum tekjuöflunar undir ríkissjóð Íslands svo að hann fái staðið undir þeim vaxandi fjölda kostnaðarsamra verkefna sem við blasa og einkum þó því að skera úr fjötrum eymdar og fátæktar þá er verst eru settir í samfélaginu. Hér skal kynnt raunhæf hugmynd til nýrrar tekjuöflunar. Lagt er til að ráðherra láti kanna möguleika á stofnun ylræktargarðs nærri fyrirhugaðri Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár með það fyrir augum að greinin geti notið stóriðjuorkuverðs án dreifingarkostnaðar. Öllum ylræktendum standi til boða að flytja starfsemi sína þangað í ljósi þess að flutningskostnaður raforku yrði í lágmarki.
Spurning mín til hæstv. ráðherra er eftirfarandi: Myndi ráðherra styðja slíka tillögu?