152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

kjörræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi.

[11:03]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég átta mig á því að alþjóðleg samskipti eru trúnaðarmál en það varðar innihaldið. Það getur ekki varðað það hversu oft eða mikil samskiptin eru, hvenær þau áttu sér stað, til að átta sig á því hvernig ferli þeirra er með tilliti til þess að Ísland er með Aleksander Mosjenskí sem kjörræðismann. Um það snýst málið. Ég spurði í fyrirspurn minni hvort einhvern tímann hefðu borist ábendingar eða athugasemdir um pólitísk tengsl Mosjenskí við Lúkasjenkó og íslensk stjórnvöld svara bara: Nei, við höfum ekki fengið neitt, bara séð í fjölmiðlum. Samt fer ekki fram nein athugun á því varðandi kjörræðismann okkar og sú staða veitir tvímælalaust ákveðna vernd fyrir viðkomandi einstaklinga í því landi út af einmitt því að slík alþjóðleg samskipti falla undir ákveðinn trúnað. Þess vegna er þeim mun mikilvægara fyrir okkur (Forseti hringir.) að passa upp á að okkar kjörræðismaður sé ekki að misnota sér slíka stöðu. (Forseti hringir.) Eru einhver áform um það að gera sjálfstæða skoðun á því hvort það sé einhver fótur (Forseti hringir.) fyrir því sem Evrópusambandið er að reyna að gera vegna Mosjenskí?