flutningur aðseturs Vatnajökulsþjóðgarðs, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir sína skýrslu og upplýsingar til okkar um þessi áform en um leið segja að ég fagna þessum áformum gríðarlega og kannski ekki síst vegna þess að þegar lög um Vatnajökulsþjóðgarð voru samþykkt í þessum sal árið 2007 þá var það tímamótalöggjöf í íslenskri sögu. Ég leyfi mér að ganga svo langt að segja það. Þarna var verið að ákveða með lagabálki að friðlýsa svæði, stórt svæði sem þá nam um 13% er komið í, held ég, rétt um 15% í dag með stækkunum á þessum tólf árum eða hvað það nú er. Nema hvað að stjórnfyrirkomulag þjóðgarðsins voru algjör tímamót í samskiptum ríkis og sveitarfélaga enda þar sem undir var fjöldinn allur af sveitarfélögum sem hafði gríðarlegan hag af þessu. Þess vegna var stjórnfyrirkomulagið sett upp, eins og ráðherra fór yfir í ræðu sinni, með þessum tímamótahætti og um fyrirkomulagið hefur ríkt verulega góð og mikil sátt. Og í uppleggi fyrirrennara hæstv. ráðherra í starfi varðandi umræðuna um hálendisþjóðgarð, af því að hana bar aðeins á góma áðan í fyrri ræðum, þá lá það til grundvallar sambærilegu uppleggi um hálendisþjóðgarð að spegla þetta yfir á stærra svæði, þ.e.a.s. sem lýtur að hálendinu öllu. Þetta fyrirkomulag er til mikillar eftirbreytni þegar kemur að því að komast að sameiginlegri niðurstöðu og uppleggi með, ég ætla að leyfa mér að segja, ráðstöfun lands, sem eins og í þessu tilfelli laut að friðlýsingu svæðis. Þetta var fyrirmyndarupplegg og mikil framsýni af hálfu Alþingis að hafa komist að þessari niðurstöðu á sínum tíma. Með reglugerð ári síðar eru svo mörk þjóðgarðsins dregin og eins og þau sem til þekkja vita þá er það aldrei gert í neinu tómarúmi heldur alltaf í þessu ríka samstarfi og samtali sveitarfélaga og hins opinbera sem fer með formlega umsjón og rekstur svæðanna.
Af því að hv. þm. Guðbrandur Einarsson kom inn á skýrslu sem Ríkisendurskoðun skilaði á árinu 2017 um alvarlega stöðu sem upp var komin hjá þessari ríkisstofnun þá langar mig að segja af því tilefni að síðan sú skýrsla kom út þá hefur átt sér stað meiri háttar viðsnúningur í starfsemi stofnunarinnar, meiri háttar fjölgun starfa. Nær öll þeirra, ef ekki öll, eru utan höfuðborgarsvæðisins, af því það er nú til umræðu hér, og milljarðar hafa verið settir í uppbyggingu innviða sem er í fullkomnum takti — og ég er ekki að segja að ekki megi alltaf gera betur — við þá þróun sem við höfum séð frá 2011 og 2012 í fjölgun ferðamanna á landinu. Með bæði stjórnfyrirkomulaginu og þeim ábendingum sem sannarlega komu í skýrslu Ríkisendurskoðunar má því segja að stjórnvöld hafi brugðist hratt og örugglega við með öflugum hópi starfsfólks hjá þessari stofnun til að taka utan um þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir, enda eru innan vébanda þjóðgarðsins margar af okkar helstu náttúruperlum. Við erum að tala um Jökulsárlón sem kemur inn með viðbótum árið 2016, ef ég man rétt, frekar en 2017. Við erum að tala um Skaftafell þar sem við erum með ríflega 50 ára sögu friðlýsingar, Jökulsárgljúfur annað eins, bara svo ég taki dæmi, fyrir utan afar verðmæt hálendissvæði sem eru þarna undir. Heilt yfir leyfi ég mér því að fullyrða, ég geng svo langt, virðulegi forseti, að það hefur tekist afar vel til með upplegg og hugmyndafræðina sem er á bak við lögin um Vatnajökulsþjóðgarð. Mig rekur reyndar minni til þess, hafandi fylgst með í þessum geira mjög lengi, að það hafi aldrei staðið neitt annað til eðli málsins samkvæmt en að störfin væru að þungamiðju innan vébanda eða á starfssvæði þjóðgarðsins og þótti nú skjóta skökku við á fyrstu metrum þessarar stofnunar að starfsaðstaða framkvæmdastjóra framan af, og ég held að það hafi verið einn skrifstofustjóri sem því fylgdi, væri á höfuðborgarsvæðinu. Gott og vel. Það breytir ekki þeirri staðreynd sem ráðherrann fór yfir í ræðunni, að 90% starfseminnar, um og yfir með tímabundnu fjölguninni yfir sumartímann, af því landvarslan er starf þess eðlis, er öll utan höfuðborgarsvæðisins.
Ég fagna því að þessi áform hafa nú verið fastsett með því að flytja lögheimilið. En mig langar að velta upp einni hugmynd svona í ljósi þess sem ég hef verið að hlusta á hjá hv. þingmönnum. Af því að nú höfum við öll upplifað það í samhengi við þróun tækninnar og kannski þróun hugarfarsins með afstöðu til óstaðbundinna starfa þá hef ég alltaf átt mjög erfitt með að átta mig á því af hverju lögheimili eða aðsetur, sérstaklega framkvæmdastjóra eða forstjóra, þurfi endilega að vera bundið við ákveðinn stól á ákveðnum stað. En gott og vel. Ef lögin kveða á um það svona þá breytum við því ekki á þessum vettvangi. En verandi með, eins og staðan er í dag, níu starfsstöðvar undir þá er mikil fyrirmynd í systurstofnun Vatnajökulsþjóðgarðs, Umhverfisstofnun, sem hefur um áratugaskeið, örugglega í hátt í 15 ár, skulum við segja, auglýst nær öll sín störf — þetta er mjög stór stofnun — án þess að þetta snúist um ákveðna fasta staðsetningu heldur hefur fólkið getað valið um mismunandi starfsstöðvar Umhverfisstofnunar sem eðli málsins samkvæmt er með verkefni úti um allt land, bæði á friðlýstum svæðum en sinnir líka mengunareftirliti og ýmsu öðru. Hefði ekki verið hægt að horfa til þess að því sé líkt með farið hvað varðar starf framkvæmdastjóra í þessu tilfelli, sem ég veit að stendur til að auglýsa, að það sé bara auglýst á einhverjum af þeim starfsstöðvum þjóðgarðsins sem núna verða, eins og ég skil þetta, allar utan höfuðborgarsvæðisins? Hafandi sagt það, verandi þingmaður Reykjavíkur, sé ég ekkert því til fyrirstöðu að friðlýst svæði séu með starfsaðstöðu í Reykjavík, bara ekki neitt. Þó að sannarlega þau séu meira og minna öll utan höfuðborgarsvæðisins vil ég nefna í því samhengi hugmynd og tillögu sem hefur lengi verið í burðarliðnum og rædd, um mikilvægi þess að koma á sérstakri gestastofu friðlýstra svæða á höfuðborgarsvæðinu. Við vitum að stofninn af okkar gestum sem koma til landsins kemur hingað til að heimsækja og skoða íslenska náttúru. Gestastofur eru augu inn í það sem við getum mögulega séð og kynnst. Þær eru líka mjög mikilvægt tól í að stýra umferð af því að ef þú kemur og veist ekki nákvæmlega hvert þú ert að fara, byggir kannski hugmynd þína bara á ljósmynd eða Instagram-skoti einhvers staðar frá, þá getur þú fengið leiðbeiningu og upplýsingar um það hvert væri best að fara þar sem innviðirnir geta tekið á móti þér og upplifuninni þinni er ekki endilega raskað af því það er of troðið eða ekki nægilega sterkir innviðir til að taka á móti þér. Þá eru gestastofur fyrsti viðkomustaður. Ég hef heyrt margt galnara en það að koma sérstaklega á fót í Reykjavík einhvers konar svona auga fyrir friðlýst svæði. Það er ekkert óeðlilegt við það að þá séu störf því tengd staðsett í Reykjavík, svo ég segi mína skoðun á því.
Ég fagna líka þeim áformum ráðherrans, sem hann nefndi hér í ræðu og hefur reyndar sagt af öðru tilefni, að skoða samsetningu og möguleika á samlegð hinna ýmsu opinberu stofnana sem eru sannarlega margar og margar þeirra með mjög skyld hlutverk. Þar blasir við að sérstakar stofnanir, Þingvallaþjóðgarður, hluti Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarður, eru að vinna að nákvæmlega sömu verkefnum á mismunandi svæðum um allt land. Ég þekki vel til innan þessa geira og veit að þar ríkir mikill áhugi á því að þessar stofnanir geti samnýtt krafta sína undir einni kennitölu. Ég vil leyfa mér að orða það þannig án þess að fara út í sérstaka staðsetningu þar. Yrði svoleiðis stofnun einhvern tímann að veruleika þá yrði hún eðli málsins samkvæmt að vera með dreifðar starfsstöðvar úti um allt land.
Þá vil ég koma að öðru sem ég fagna líka. Ég sé að ráðherra, ætli það hafi ekki verið í síðustu viku, tók þátt í opnun gestastofu sem hér hefur borið á góma, gestastofu í Mývatnssveit sem er þá að fullnusta það sem kveðið er á um í lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, að starfræktar skuli einar sex meginstarfsstöðvar eða gestastofur innan vébanda hans. Það er vel að öllum þessum árum síðar skuli það hafa klárast og það hefur gerst með þeim hætti að þarna fékkst húsnæði sem upphaflega var byggt sem skóli og seinna varð að hóteli, á frábærum stað í miðri Mývatnssveit sem er enn ein náttúruperlan og heyrir undir aðra stofnun. Undir þessu sama þaki er ekki bara sameinuð gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs og friðlýstra svæða í Mývatnssveit heldur erum við að horfa á þetta sem starfsaðstöðu þeirra fjögurra opinberu stofnana sem vinna og starfa í Mývatnssveit og líka í þriðja lagi starfsaðstaða fyrir önnur opinber störf ef vilji væri fyrir hendi. Þarna finnst mér við vera að færast nær þeim skilningi og þeim viðmiðum sem við höfum færst nær á undanförnum árum, sér í lagi vegna Covid, þ.e. að það á ekki endilega að skipta máli hvar við erum staðsett að því gefnu að við getum bara unnið starfið okkar. Þess vegna sé ég ekkert því til fyrirstöðu að bókari sitji í Fellabæ og fjármálastjóri í Reykjavík og framkvæmdastjóri með bundna starfsaðstöðu á Höfn í Hornafirði. Það er bara ekkert því til fyrirstöðu, svo ég segi mína skoðun á því. En ég hefði gjarnan viljað heyra skýringarnar á því af hverju það sé alveg nauðsynlegt, ef til stendur að auglýsa starf framkvæmdastjóra og lögheimili er bundið við ákveðna starfsstöð, að auglýsa starfið endilega á þessari starfsstöð.
Að lokum vil ég segja eitt. Ég veit að þessu samfara er ríkur og góður vilji í akkúrat þessu sveitarfélagi sem um ræðir til að taka vel utan um málið þannig að hægt sé að koma til móts við atriði eins og húsnæði, að mér skilst. Það er þá í rauninni starfsaðstaða fyrir þessa einstaklinga sem um ræðir. Ef við erum að tala um að efla einstakar starfsstöðvar eins og í þessu tilfelli þarna á Höfn þá er það hreinlega aðstaðan, starfsaðstaðan sjálf sem stendur sannarlega þessari uppbyggingu og fjölgun óstaðbundinna starfa fyrir þrifum — ég tek gott nýlegt dæmi úr Mývatnssveit — en jafnframt húsnæðisaðstaða eða húsnæði fyrir þá starfsmenn sem þessum störfum vilja sinna. Tökum sem dæmi hæfan einstakling sem er ráðinn í starf. Hann býr einhvers staðar annars staðar en vill flytja. En hann getur kannski hreinlega ekki flutt vegna þess að það er húsnæðisvandamál, eins og við þekkjum, um allt land.
Ég rek augun í að í þingsályktunartillögu um byggðaáætlun sem er til umræðu í þinginu og er núna í hv. umhverfis- og samgöngunefnd er mjög áhugaverð aðgerð, liður B7 um óstaðbundin störf, þar sem því er velt upp að kannaður verði möguleikinn á því að Íbúðalánasjóður geti komið einhvern veginn að því með stuðningi að laða fólk til sveitarfélaga, til þess einmitt að skapa þessa starfsaðstöðu á vettvangi, sem hefur áhuga á því að búa í því sveitarfélagi. Ég held að það þyrfti að horfa til sambærilegra ákvæða þegar kemur að íbúðarhúsnæði af því að það stendur sannarlega óstaðbundnum störfum fyrir þrifum vítt um land.
Að því sögðu ítreka ég þá skoðun mína sem þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og ég hvet hv. þingmenn og hæstv. ráðherra til að íhuga það, að skoða möguleikann á og mikilvægi þess, sem myndi þjóna öllu landinu, að koma á fót gestastofu friðlýstra svæða á höfuðborgarsvæðinu.