152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

flutningur aðseturs Vatnajökulsþjóðgarðs, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. - Ein umræða.

[12:38]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Það er ástæða til að fagna sérstaklega þeirri umræðu sem hér á sér stað undir liðnum munnleg skýrsla hæstv. umhverfisráðherra um Vatnajökulsþjóðgarð. Þegar ráðist var í stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs var það stærsta náttúruverndarverkefni sem við höfum ráðist í frá upphafi vega, mjög metnaðarfullt, mjög mikilvægt. Það átti sér aðdraganda, og ég ætla að leyfa mér að nefna hann aðeins til sögunnar, í tillögu frá Hjörleifi Guttormssyni sem sat lengi á þingi fyrir Alþýðubandalagið og gerði tillögu að stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Það var þáverandi umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, sem flutti um það þingsályktunartillögu að vinna að undirbúningi slíks þjóðgarðs og síðan var Vatnajökulsþjóðgarður samþykktur með löggjöf 2007 og settur formlega á stofn 7. júní 2008 þannig að hann á 14 ára afmæli í næstu viku. Það var ekki síst fyrir ötula framgöngu fyrstu stjórnar, bæði undirbúningsstjórnar og stjórnar þjóðgarðsins, undir forustu Önnu Kristínar Ólafsdóttur sem úr varð regluverk sem hefur virkað svona vel í 14 ár. Þar er svæðisskiptingin algjört lykilatriði og að nýtt er hugmyndafræði IUCN um þjóðgarða til hins ýtrasta, hvernig þú svæðisskiptir þeim, hvers konar starfsemi er leyfð innan þjóðgarða og hvernig við starfrækjum þá. Það var mikil gæfa að það skref var tekið að nálgast ekki starfsemi þjóðgarðsins út frá bönnum heldur út frá skilgreiningu á því hvernig við ætluðum að nýta hann. Ég hygg að það hafi fært þessum þjóðgarði þann sess sem hann hefur, ekki bara hér á landi sem stærsti þjóðgarður í Evrópu, heldur sessinn sem hann hefur í framlagi okkar til alþjóðlegrar náttúruverndar vegna þess, eins og hér hefur verið bent á, að hann er kominn á heimsminjaskrá UNESCO og er stórkostlegt framlag Íslands til alþjóðlegrar náttúruverndar. Ég leyfi mér að fullyrða það. Hvar hefðum við verið þegar hér varð bylting í ferðaþjónustu og hingað streymdu ekki bara 500.000 ferðamenn á ári heldur fóru upp í 2 milljónir á nokkrum árum eins og við þekkjum, ef við hefðum ekki haft þjóðgarðinn m.a. til að taka á móti öllum þessum ferðamönnum sem hingað eru komnir til að skoða einstaka íslenska náttúru.

Það voru ekki margir satt að segja á árunum 2007 og 2008 sem höfðu mikla trú á stofnun þessa þjóðgarðs. Það rifjast upp fyrir mér í þessari umræðu. Menn höfðu kannski um eitthvað annað að hugsa á þeim árum. En ég hélt því alltaf fram statt og stöðugt að hér væri um risastóra byggðaaðgerð að ræða. Hún er það og tölurnar sýna það og eins og hæstv. ráðherra sagði: 50 ársverk, 90% þeirra á landsbyggðinni. Það er það sem skiptir máli í uppbyggingu þessa þjóðgarðs. Það kom á daginn að til þess var hann stofnaður, í fyrsta lagi auðvitað til náttúruverndar en að sjálfsögðu líka til uppbyggingar starfa og innviða um allt land næstum því vegna þess hve þjóðgarðurinn er stór. Þessi svæðaskipting og þjóðgarðsverðir á svæðunum og hvernig þar er starfað hefur séð til þess að við höfum getað byggt upp innviði á því stóra svæði sem Vatnajökulsþjóðgarður nær yfir.

Ég vil líka taka undir það sem hér hefur verið sagt um aðgengi, af því það er líka hluti af hugmyndafræði þjóðgarðs að allt fólk geti haft aðgengi að náttúrunni. Mér finnst mjög mikilvægt að því sé alltaf haldið til haga í umræðunni og það þurfi að vera þannig svæði í öllum þjóðgörðum að aðgengi sé gott. Auðvitað er það ekki alls staðar. En það verða samt að vera ákveðin svæði sem allir geta notið. Ég vil fá að ítreka það hér.

Vegna þess efnis sem hér er til umræðu um staðsetningu framkvæmdastjórans og hvers vegna það hafi ekki verið þannig frá upphafi, langar mig bara að rifja upp að það fylgdi einn starfsmaður þessu verkefni. Það vildi þannig til að hann átti heima í höfuðborginni. En að sjálfsögðu var stefnan alltaf sú og hún er sem betur fer að raungerast núna, að höfuðstöðvar þjóðgarðsins eru úti á landi. Þær eiga að vera það og það skiptir líka mjög miklu máli að þar horfum við til fleiri stöðugilda en eins nýtum þá kosti sem eru í starfrækslu þessa mikilvæga þjóðgarðs alveg til fullnustu.