152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

flutningur aðseturs Vatnajökulsþjóðgarðs, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. - Ein umræða.

[12:44]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mjór er mikils vísir. Inntakið í þessum forna málshætti á vel við um dagskrárefnið. Hugtakið vísir merkir þarna frjóangi, eitthvað lítið sem grær, eflist og verður stærra og stærra með tímanum. Að flytja aðsetur og lögheimili Vatnajökulsþjóðgarðs er skref, vissulega ekki risastórt skref fyrir mannkynið eins og bandaríski geimfarinn orðaði það forðum um fyrsta skrefið sem hann tók á tunglinu, en nauðsynlegt og lofsvert skref sem ég styð og fagna og þó fyrr hefði verið. Með fullri virðingu fyrir öðrum stöðum fjær og nær Vatnajökli þá er Höfn í Hornafirði sjálfsagður kjörstaður fyrir aðsetur og lögheimili Vatnajökulsþjóðgarðs og framkvæmdastjóra hans. Í störfum talið vegur breytingin ekki þungt, er vonandi vísir að meiru og á að vera vísir að meiru. Hér og nú er þetta fyrst og fremst táknræn yfirlýsing um að eðlilegt sé að hjarta stjórnsýslu Vatnajökulsþjóðgarðsins skuli slá í heimabyggð hans en ekki á höfuðborgarsvæðinu og þá hlýtur Höfn að vera þar efst á blaði. Þetta er jafnframt táknræn yfirlýsing um stuðning og hvatningu hins opinbera við að virkja og efla frumkvæði, atorku og hugmyndir heimamanna sjálfra í smáu og stóru.

Góðir hlutir gerast líka í heimabyggð. Það á ekki að vera svo að alltaf sé beðið eftir boðum eða bönnum að sunnan. Ég staldra þess vegna fyrst og fremst við anda og inntak þessa máls. Það felst ákveðinn boðskapur í yfirlýsingu og ákvörðun hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um að flytja aðsetur og lögheimili Vatnajökulsþjóðgarðs úr Garðabæ til Hafnar og sá boðskapur er sem talaður úr mínu hjarta. Einmitt í þessum anda er líka boðskapur yfirlýsingu Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, hæstv. ráðherra háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarmála, frá því fyrr á árinu um að nær öll störf sem ráðuneyti hennar auglýsi verði án staðsetningar. Ráðuneytið er fyrsta ríkisstofnunin til að gefa út slíka yfirlýsingu og fyrir það vil ég þakka.

Frumkvöðlakraftur og atorka heimafólks í byggðum landsins er mér ofarlega í huga nú sem áður. Ég neita mér því ekki um að ljúka máli mínu á því að nefna nýjasta flugfélag landsmanna, Niceair, með höfuðstöðvar á Akureyri. Fyrsta flugvél þess félags tók sig á loft nú í morgunsárið frá Akureyri og stemningin á Norðurlandi fyrir þessu fyrirtæki er slík að hún er nánast áþreifanleg hér sunnan heiða. Táknrænt er að fyrsta flugvélin heiti Súlur eftir bæjarfjalli Akureyringa. En táknrænt er líka að flugfélagið heiti fullu nafni Niceair, North Iceland. Það eru skýr skilaboð til landshlutans og líka skýr skilaboð til fólks og fyrirtækja um þennan möguleika til flutninga á fólki og vörum milli Akureyrar og áfangastaða erlendis. Niceair er frumkvæðisverkefni í heimabyggð, lofsverður vaxtarsproti sem ástæða er til að óska okkur öllum til hamingju með. Nýtt aðsetur Vatnajökulsþjóðgarðs á Höfn verður líka á sinn hátt vaxtarsproti sem ástæða er til að óska okkur öllum til hamingju með.