flutningur aðseturs Vatnajökulsþjóðgarðs, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Við ræðum flutning formlegs aðseturs og lögheimilis Vatnajökulsþjóðgarðs til Hafnar í Hornafirði næsta haust og gerum það í framhaldi af því að Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnti þessi áform á ríkisstjórnarfundi fyrir ekki löngu síðan.
Það er ágætt að hafa í huga, eins og fleiri hafa nefnt, að Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður með lögum árið 2007. Þetta eru um 15% af yfirborði landsins sem þarna eru undir, það nær til Vatnajökuls og stórra svæða í nágrenni hans, þar á meðal þjóðgarðanna sem fyrir voru í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum. Land þjóðgarðsins nær til átta sveitarfélaga með um 13.000 íbúa og garðurinn er, bara svo það sé sagt, ómetanleg perla á heimsvísu og við hljótum að umgangast málið í því samhengi. Það er tímanna tákn að við erum öll sammála um þetta núna en kannski hefðum við ekki verið það fyrir einhverjum áratugum síðan.
Þegar áformin voru kynnt sagði ráðherra: Vatnajökull er ekki á höfuðborgarsvæðinu og ég hef aldrei skilið hvers vegna lögheimili þjóðgarðsins er á höfuðborgarsvæðinu. Nú þegar ég er í aðstöðu til að breyta þessu þá geri ég það og flyt með því mikilvæg störf á landsbyggðina.
Þetta er gott og gilt sjónarmið svona almennt séð og ég styð grunnhugsunina í því og þessa tilhögun ráðherra í þessu tiltekna máli, bæði út frá því að það getur verið mjög heppilegt og heppilegra svona að jafnaði, að stofnanir séu beintengdar við fólk, staði og þá starfsemi sem heyrir undir viðkomandi stofnun og slíkt er síðan líka auðveldara í dag með breyttri tækni og aukinni tæknivæðingu. Störf þurfa í mörgum tilfellum ekki að vera bundin við ákveðna staðsetningu. En það getur þó verið heppilegra í mjög mörgum tilfellum. Svo er það einnig að í þessari tilhögun þá fylgir oft betri nýting á skattfé. En það er ekkert sama hvernig þetta er gert. Við höfum því miður dæmi um að illa hafi verið staðið að slíkum breytingum og þá með þeim afleiðingum að sérhæft starfsfólk, sérfræðingar, stjórnendur og aðrir hafi ekki viljað fylgja með stofnuninni þegar henni er fundið nýtt aðsetur. Það er ekki gott þegar það gerist og því skiptir öllu máli að framkvæmdin sé með þeim hætti að starfsemin veikist ekki til að mynda með einhvers konar spekileka. Ég fæ þó ekki séð að sú sé raunin í þessu máli þegar við erum að tala um flutning aðseturs Vatnajökulsþjóðgarðs til Hafnar í Hornafirði og það er vel. Hins vegar hefur eitthvað vantað upp á samráð og upplýsingagjöf í þessu máli sem kristallaðist í viðbrögðum annars staðar frá eins og rakið var ágætlega í ræðu áðan. Við þekkjum líka nýlegan fréttaflutning af því. Því miður virðist vera vísir að hefðbundnu reiptogi á milli svæða og sveitarfélaga í þessu máli og brýnt að leysa úr því þannig að allir skilji sáttir við. Hringl í þessum efnum er engum til góða og það má vel skilja sjónarmið fólks á Héraði sem lengi vel hélt að starfsemin myndi eflast þar en ekki annars staðar. Auðvitað geta orðið vonbrigði þegar svona lagað gerist og brýnt að stjórnvöld forðist slíkar uppákomur því þetta er auðvitað viðkvæmt á stöðum þar sem hvert starf skiptir máli.
Ég vona að þessi nýja skipan verði til að efla starfsemina, garðinn sjálfan og byggð og atvinnu og mannlíf á svæðinu. Við eigum mikið undir því að vel takist til í þessum efnum. Ég ætla líka að taka undir það sem kom fram hjá hv. þm. Guðbrandi Einarssyni um að það sé mikilvægt að þær athugasemdir sem Ríkisendurskoðun gerði fyrir fáeinum misserum hvað varðar rekstur og starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs, skili því sem stefnt var að og þá til lengri tíma. Við erum þá auðvitað að hugsa ár fram í tímann og áratugi jafnvel.
Að lokum vil ég minna á og benda á að minn flokkur talar skýrt í þessum efnum þegar við ræðum um þjóðgarðinn í stærra samhengi því að við viljum að leitast verði við að styrkja byggð í nágrenni þjóðgarða og skapa atvinnu og aðstæður í náinni samvinnu við sveitarfélög fyrir fjölbreyttar rannsóknir og að nauðsynlegt sé að koma umsjón með náttúruvernd, þjóðgörðum og þjónustusvæðum undir eina stofnun til að samþætta ákvarðanatöku, auka skilvirkni og bæta nýtingu fjármagns.