152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

flutningur aðseturs Vatnajökulsþjóðgarðs, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. - Ein umræða.

[12:52]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir góða umræðu og vil aðeins taka á nokkrum þáttum. Í fyrsta lagi: Þetta er ekki einhver spurning,. Það er búið að taka þessa ákvörðun. Enginn þarf að velkjast í vafa um það. Hún hefur verið tilkynnt.

Í öðru lagi varðandi athugasemdir Ríkisendurskoðunar á sínum tíma. Sem betur fer hefur verið komið til móts við þær og harla ólíklegt miðað við reksturinn undanfarin ár að það komi aftur slíkar athugasemdir.

Varðandi það sem hv. þingmenn vísa í um hagsmuni Reykjavíkur. Ég er þingmaður Reykvíkinga. Ég er 1. þm. Reykjavíkur norður og búinn að vera það blessunarlega í nokkur kjörtímabil. Ég hef verið skammaður fyrir það oftsinnis að koma hér og taka upp málefni Reykjavíkur og gæta hagsmuna Reykvíkinga. Það er nú samt bara þannig að það eru hagsmunir okkar Reykvíkinga að það sé ákveðið öryggi úti á landi ef til dæmis eitthvað bjátar á hjá okkur. En svo legg ég alla áherslu á það að staðarþekking sé nýtt. Ég held að engum myndi finnast það góð hugmynd, ekki einu sinni Íslendingum, ef við ættum að stjórna í Færeyjum frá Íslandi. Við þekkjum bara ekki nógu vel til þar. Varðandi þessi svæði, þetta umfang þess sem við erum að ræða hér, þá skiptir svo miklu máli að þekkingin sé á vettvangi.

Aðeins svo það sé sagt: Þessi fréttaflutningur Ríkisútvarpsins sem hér er verið að vísa í vakti furðu mína. Ég kannast ekki við slíka umræðu í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs eða hjá þeim sveitarstjórnarmönnum sem ég hef talað við. Það var ákveðinn hlutur sem gerðist þarna á sínum tíma. Það var ekki forstjórinn heldur fjármálastjórinn sem átti að flytja. Það raungerðist ekki. En bara svo að það sé alveg á hreinu þá eru fimm starfsmenn í Garðabæ. Það er einn á Akureyri. Það eru fimm í Fellabæ, þrír í Mývatnssveit, fimm í Jökulsárgljúfrum, 17 í Skaftafelli eða Jökulsárlóni, átta á Hornafirði og fjórir á Kirkjubæjarklaustri. Þetta eru starfsmennirnir. Það sem er búið að gerast núna er að það er búið að færa lögheimilið og nýr framkvæmdastjóri tekur við í haust á Höfn. Það eru líka fréttir, miðað við þær upplýsingar sem ég hef, að þá er einn af þessum, annar starfsmaður sem er í Garðabæ, búinn að festa kaup á húsnæði á Höfn og væntanlega fer hann þangað líka. Síðan er fjármálastjórinn að hætta sökum aldurs í haust og nýr framkvæmdastjóri mun auglýsa þá stöðu. Hugsunin er þessi: Við erum með starfsstöðvar í kringum Vatnajökulsþjóðgarð. Það er bundið í lög og störfin eru auglýst á þessum starfsstöðvum. Ég tel að það sé gott og tæknin hefur svo sannarlega hjálpað okkur hvað það varðar.

Mér finnst góð athugasemdin sem hér kom um aðgengismálin. Ég mun skoða það alveg sérstaklega. En síðan líka þegar kemur að þjóðgörðum og friðlýstum svæðum — því að þetta með 15%, við erum alla vega með 30% af landinu þegar allar friðlýsingar eru teknar með — þá hef ég sett af stað hóp sem á að gera ákveðna stöðuskýrslu, grænbók, ef menn vilja kalla það svo, undir forystu Árna Finnssonar. Þar eru líka Sveinbjörn Halldórsson og Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir. Það er ekkert leyndarmál að uppleggið er ekkert ósvipað og í grænbókinni um orkumálin og loftslagsmálin. Við þurfum að ræða þessi mál og við þurfum að sjá til þess að fyrirkomulag þjóðgarða og friðlýstra svæða sé eins gott og mögulegt er.

Aðalatriði málsins er þetta í mínum huga: Það er alveg skýrt og það kom fram réttilega að unnið hefur verið gott starf. Menn vilja ekki lenda í því sem kallað hefur verið spekileki þannig að hér er ekki um neina hreppaflutninga að ræða. Það er ekki um neina hreppaflutninga að ræða. Það er verið að taka ákvörðun um það að þau störf sem verið er að auglýsa verði á landsbyggðinni í kringum Vatnajökulsþjóðgarð, þ.e. starfsstöðvarnar í Vatnajökulsþjóðgarði og aðsetrið er á Höfn. Mér finnst það svolítið segin saga að þegar ég spurðist fyrir um það hvað margir þingmenn hefðu heimsótt starfsstöðina sem núna er eða höfuðstöðvarnar, að þá hefur enginn þingmaður heimsótt þær. Ég er alveg sannfærður um það, virðulegur forseti, að á því verður mikil breyting og ég held að enginn þingmaður muni fara á Höfn í framtíðinni án þess að koma við á aðsetri og lögheimili Vatnajökulsþjóðgarðs.