heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Ég kem upp einmitt til þess að vekja athygli á breytingartillögu sem er við þetta mál frá minni hluta velferðarnefndar. Við höfum að undanförnu heyrt fjölmargar sögur af notendum heilbrigðisþjónustu, frá sjúklingum, jafnvel kjörnum fulltrúum sem ekki hafa náð eyrum heilbrigðisstarfsfólks þegar á hefur reynt, mjög raunalegar sögur. Ég held að það væri mjög mikilvægt fyrir stjórn Landspítala að hafa einn notanda þjónustunnar innanborðs, notanda þjónustunnar sem ekki hefur atkvæðisrétt. Þess vegna skiptir máli að við tökum höndum saman og tryggjum það að ein slík rödd sé í stjórn Landspítala. Þetta er heilbrigðisþjónusta. Þetta er þjóðarsjúkrahúsið okkar og það er mikilvægt að þeir sem reka það heyri rödd þeirra sem nota þjónustuna. Þess vegna hvet ég þingheim til að styðja breytingartillögu minni hluta.