framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég verð að viðurkenna það sem ný í Vestnorræna ráðinu að ég þekki ekki sögu þess af hverju þessi framkvæmd er höfð á. En ég skal afla mér upplýsinga um það og finna vettvanginn til þess að koma þeim upplýsingum síðan á framfæri. Um þetta hefur talsvert verið rætt í Norðurlandaráði þar sem ég hef áður setið, einmitt um það hvernig sé hægt að fylgja málum betur eftir og talað um það hvernig hægt sé að koma þeim betur á framfæri á þjóðþingunum. Ég held að í einhverjum tilvikum hafi verið fluttar tillögur. Ég kann það reyndar ekki alveg til hlítar. En þetta er einmitt eitt af því sem talað hefur verið um að beina til ríkisstjórnanna. Sá munur er þó auðvitað á þegar kemur að Norðurlandaráði að þar er einnig samstarf á vettvangi ráðherranna sem hafa með sér formlegt samtal og þar er það fastar í reipunum að þingmenn Norðurlandaráðs eigi fundi með ráðherrunum. Það er ekki ráðherranefnd að sama skapi þegar kemur að Vestnorræna ráðinu. Án þess að þora að fullyrða það, því eins og ég sagði áðan þá kann ég þessa sögu ekki svo gjörla, þá grunar mig að það geti haft eitthvað með þetta að gera, að þetta fyrirkomulag sé haft á. Ég skal afla mér frekari upplýsinga um þetta því að auðvitað skiptir máli að það sem við tökum þátt í og ákveðum á alþjóðavettvangi skili sér hingað innan lands.