152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.

643. mál
[13:45]
Horfa

Frsm. ÍVN (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef látið þá skoðun mína oft í ljós að ég tel tilefni til meiri og dýpri umræðu um utanríkismál á Alþingi. Á meðan andsvarinu stóð bárust mér þau skilaboð varðandi Vestnorræna ráðið að það sé hluti af fyrirkomulaginu í öllum landsdeildum landanna sem þar eiga sæti, þ.e. Íslands, Grænlands og Færeyja, að leggja þingsályktunartillögurnar fram með þessum hætti. En eftir því sem ég best veit þá er þetta einsdæmi í alþjóðastarfinu. En ég skal afla mér betri upplýsinga um þetta og hvort þetta geti verið fyrirmynd sem við getum notað annars staðar. Það kann vel að vera. Ég er alla vega sammála því að mér finnst mikilvægt að auka umræðuna um utanríkismál til að fá betra samtal um hvað þeir þingmenn sem taka þátt fyrir hönd Alþingis í alþjóðastarfi fjalla um og að það samtal skili sér með virkari hætti.