framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.
Virðulegi forseti. Ég fagna þessari umræðu. Hún er mjög góð. Ég hlakka mjög mikið til að eiga í samstarfi við hv. þm Kristrúnu Frostadóttur í Vestnorræna ráðinu og þá nýliða sem þar eru. Mér finnst mjög mikilvægt fyrir okkur að koma þarna fram sem svolítið svona stóri bróðir í þessu samstarfi og þannig hef ég upplifað það. Þau líta mjög upp til okkar og þau líta mjög til okkar í þeim tækifærum sem við höfum í grænum lausnum, sérstaklega Færeyingar og Grænlendingar, og við upplifum okkur svolítið sem stóri bróðir í þessu máli.
Mér finnst líka mjög merkilegt þegar ég hlustaði á þetta — og við erum auðvitað sammála í þessum málum, algerlega — hvernig ætlum við að útskýra það fyrir frændum okkar og vinum á Grænlandi og í Færeyjum að hér sé í rauninni allt stopp í þeim orkuskiptum sem við ætlum að fara í vegna þess að rammaáætlun hefur t.d. ekki verið samþykkt hérna síðan 2013? Hér er allt frosið ef menn ætla í orkuskipti. Ef við ætlum að fara að byggja upp með grænum lausnum þá þarf til þess aðra orku en við erum að nota í dag. Við tölum um sjálfbært samfélag og þar erum við algerlega sammála. Við erum sammála um allt nema að of margir eru á móti því að fara í orkuskipti og nota þær auðlindir sem við eigum til þess að leysa af hólmi jarðefnaeldsneyti sem er það mikilvægasta sem við getum gert í loftslagsmálunum. Ég kalla eftir samstöðu í því hjá okkur í þinginu þannig að við getum farið á fund okkar bestu nágranna og sagt þeim að við ætlum af heilum hug að fara í orkuskipti.