152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.

643. mál
[13:59]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég var ekki að ásaka neinn um það, síst þá ágætu þingkonu Kristrúnu Frostadóttur. Ég ásaka okkur öll fyrir það að við klárum þessi mál ekki og ég tek undir með henni að við þurfum að forgangsraða og fólkið í landinu vill fá að taka þátt í orkuskiptunum, svo sannarlega.

Ég er með frumvarp á þessu þingi um að gefa framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 sem er gríðarlega mikilvægt fyrir Suðurnes. Þar viljum við íbúarnir og atvinnulífið fara í orkuskipti. Það eru nær allir bílaleigubílar landsins geymdir við flugvöllinn en það er ekki hægt að hlaða þá rafmagni þótt krafan sé frá okkur í þinginu að ákveðið hlutfall bílaleigubíla séu rafbílar. Í Reykjanesbæ er ein almenn hleðslustöð, ein. Ef einhver þingmaður sem á rafmagnsbíl kemur á Suðurnesin þá er á einum stað ein stöð til að hlaða. Ég fór hringferð um daginn og það snerist allur tíminn um það hjá þeim aðila sem var á rafmagnsbíl með okkur að finna hvar næsta hleðslustöð væri. Það var bara eiginlega fullt starf að finna út úr því allan daginn hvar hægt væri að hlaða bílinn að kvöldi og svo þurfti að slökkva á miðstöðinni til þess að hann drægi þangað sem stöðin var. Við erum samt að segja að við ætlum að taka forystu í þessum málum. Ég held að við öll ættum að fara til Færeyja og til Grænlands og allra annarra þjóða og segja þeim að við ætlum að taka forystu, að við ætlum að fara í orkuskipti, ekki tala um það heldur gera það.