framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.
Virðulegi forseti. Já, ég þakka fyrir þessa athugasemd. Þetta er góð umræða. Þetta er virkilega góð umræða. Mig langar að vekja athygli í þessu samhengi á því að samflokkskona mín, hv. þm. Oddný G. Harðardóttir, hefur tekið þátt í þessari umræðu um Suðurnesjalínu og stutt þessi áform. En við þurfum líka að hafa í huga hver staðan er þegar kemur að skipulagsvaldi einstakra sveitarfélaga. Það breytir þó ekki því að auðvitað er jafnt aðgengi að orku ótrúlega mikilvægt. Mér finnast punktar hv. þingmanns áhugaverðir um aðgengi að rafmagni þegar kemur að rafmagnsbílum vegna þess að þetta snýst líka um tækifæri þessara mismunandi landsvæða, þó að Suðurnesin séu kannski nálægt höfuðborgarsvæðinu, til að taka þátt í þeirri byltingu sem getur átt sér stað í ferðaþjónustu vegna þess að ein leið til þess að við getum auglýst okkur sem grænt svæði og áhugavert svæði, til þess að laða að fleira fólk, er að það geti ferðast hér í rafbílum. Mörg svæði utan höfuðborgarsvæðisins geta ekki í rauninni boðið upp á þennan möguleika vegna þess að þar er ekki nægt rafmagn eða innviðirnir eru ekki nægilega góðir. Þetta skiptir mig líka máli og okkur jafnaðarmenn og, að ég hygg, flesta í þinginu. Við hugsum til þess hvernig við getum gert rafbílavæðinguna, orkuskiptin, aðgengilegri fyrir fleiri vegna þess að flestir nýir bílar í landinu fara í gegnum ferðaþjónustuna og bílaleigurnar. Það eru ekki allir sem geta keypt sér nýjan bíl fyrir 7, 8, kannski hátt í 10 millj. kr. Aðgengi að þátttöku í orkuskiptunum byggir á möguleikum ferðaþjónustunnar til að taka þátt í orkuskiptum og að það séu þá hleðslustaurar og aðgengi að rafmagni. Þetta er gríðarlegt hagsmunamál fyrir landsbyggðirnar og líka fyrir jöfn umskipti. Ég hlakka því bara til að taka þátt í þessari umræðu með hv. þingmanni og fólkinu sem mun starfa með okkur í Vestnorræna ráðinu núna á næstu árum.