152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.

643. mál
[14:03]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég kem hér upp líkt og aðrir hv. þingmenn til að þakka fyrir þá umræðu sem hér fer fram um hina merku samstarfsstofnun okkar með Færeyingum og Grænlendingum, Vestnorræna ráðið. Ég hygg að ég sé ekki að ýkja ef ég held því fram hér að þetta samstarf standi hjarta okkar næst þegar við horfum til þess samstarfs sem við eigum í á alþjóðavettvangi vegna þess að Grænlendingar og Færeyingar eru ekki bara nærri okkur í landfræðilegu tilliti heldur eigum við mjög margt annað sameiginlegt. Við höfum notið bæði frændsemi þeirra og vinarþels þegar á reynir og hefur á reynt í gegnum árin og áratugina. Það er líka mjög mikilvægt að Vestnorræna ráðið sem vettvangur nýtist þessum þremur þjóðum til samstarfs og uppbyggingar. Ég fagna því að þessi tillaga liggur hér fyrir og að hún sé til umfjöllunar á Alþingi vegna þess að mér hefur oft þótt þegar kemur að alþjóðasamstarfi, eins mikilvægt og merkilegt og það er og eins og fram kom í andsvörum frá hv. þingmanni Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur við hv. þingkonu Steinunni Þóru Árnadóttur, að það er svo margt sem þingmenn geta lært í alþjóðasamstarfi. Það er svo margt í gangi annars staðar sem við getum nýtt okkur í okkar störfum og þá nýtum við okkur líka það að ná í þekkingu, vísindaþekkingu og hugmyndafræði og samtal sem kannski fer ekki alltaf fram á Íslandi af svona frekar augljósum ástæðum. Það í rauninni ekki bara víkkar sjóndeildarhringinn heldur er á því mjög mikið að græða fyrir þingmenn almennt.

Hér eru tvær tillögur undir. Þær varða fjarkennslu og loftslagsmál eins og fram hefur komið. Ég myndi leggja það til við hv. þingmenn sem eiga sæti í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins að þessi tillaga færi — jú, hún fer að sjálfsögðu til hv. utanríkismálanefndar — en að hún færi einnig til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd og í umhverfis- og samgöngunefnd vegna þess að það sem hér er sagt a.m.k. um fjarkennslu og samstarf á háskólastigi á ekki síður erindi inn í menntamálanefndina. Mig langar til að benda á, að öllum öðrum háskólum ólöstuðum á Íslandi, að Háskólinn á Akureyri stendur mjög framarlega í samstarfi á norðurslóðum, við háskóla norðurslóða, í fjarkennslu ekki síst. Hann er þar eiginlega fremstur meðal jafningja og það er um að gera að nýta þá þekkingu sem þar er fyrir hendi í þessu samstarfi. Ég reyndar geri bara ráð fyrir því að hv. þingmönnum sé fullkunnugt um það og að það sé hluti af þeirri hugsun sem liggi hér að baki, af því að hún er mjög mikilvæg.

Síðan er það tillaga vegna loftslagsmálanna sem er, eins og hér hefur komið fram, að sjálfsögðu mál málanna og brýnasta úrlausnarefni mannkyns. Það skiptir mjög miklu máli hvernig það er gert og hvernig við samnýtum þekkinguna og einnig gætum sameiginlegra hagsmuna Grænlands, Íslands og Færeyja í þeim efnum. Ég hygg að ég mæli fyrir munn ýmissa í þessum sal þegar ég segi að okkur beri að standa með Grænlendingum í varðstöðu sinni um náttúrulegar auðlindir og það sem Grænlendingar vilja og geta gert á sínu landi. Við vitum að oft hefur verið togstreita þar á milli stjórnvalda í Kaupmannahöfn annars vegar og stjórnvalda í Nuuk hins vegar. Þetta eru hvort tveggja stjórnvöld sem við eigum líka í nánum samskiptum við. En það skiptir mjög miklu máli að við stöndum með smáþjóðum sem eru jafnvel smærri en við í þeirra sókn eftir auðlindasjálfstæði, efnahagslegu sjálfstæði og öllu sem því fylgir. Þar reyndar eiga Grænlendingar kannski lengra í land en frændur okkar í Færeyjum, en mér finnst mikilvægt að ræða um loftslagsmálin líka í því samhengi.

Mig langar líka að rifja upp að það var fyrir, ja líklega, tæpum 20 árum að fyrst var fjallað um loftslagsbreytingar á norðurskautinu á vettvangi Norðurskautsráðsins og reyndar Norðurlandaráðs líka. Sú umræða fór fram á mjög merkilegri ráðstefnu sem haldin var í Nuuk og þar voru til umfjöllunar í fyrsta sinn opinberlega vísindalegar rannsóknir á því hvernig norðurslóðir og norðurskautið væri í rauninni eins og kanarífuglinn í kolanámunni þegar kæmi að loftslagsbreytingum, að þar væru merkin mest, þar kæmu þau fyrst fram, þar yrðu afleiðingarnar verstar. Því miður, hæstv. forseti, hefur allt sem sagt var í þeirri merku skýrslu gengið eftir. Þá vorum við að ræða um að ef sífrerinn færi að gefa eftir þá værum við í vondum málum. En það grunaði engan eða réttara sagt það bara hélt enginn að það myndi gerast, fyrir 20 árum. Nú er sífrerinn byrjaður að gefa eftir á norðurslóðum. Við þurfum ekki að ræða lengi um bráðnun Grænlandsjökuls. Við vitum hvað hefur verið að gerast þar. Bráðnun Grænlandsjökuls hefur verið í veldisvexti á síðustu fimm árum. Ekkert samstarf er því mikilvægara á milli þessara þriggja landa en á sviði loftslagsmála. Við þurfum jafnframt því að eiga samstarf við þessi lönd um tiltekin verkefni, um vísindarannsóknir og fræðslu og uppbyggingu þekkingar, að taka þátt í þeim verkefnum sem þessar þjóðir eru í. Við þurfum að deila með þeim þeirri miklu þekkingu sem býr á Íslandi, m.a. meðal sérfræðinga hér, hvort heldur sem það eru sérfræðingar í náttúruvísindum, veðurfari, vatnamælingum eða jarðvísindum þar sem við eigum sérfræðinga á heimsmælikvarða. Við þurfum að nýta þennan vettvang til að skiptast á upplýsingum og sjá til þess að þær nýtist þessum góðu vinaþjóðum okkar með sama hætti og þær nýtast okkur.

Út á við geta þessi þrjú lönd, Ísland, Grænland og Færeyjar einnig verið rödd á alþjóðlegum vettvangi, ekki síst þegar kemur að réttindum frumbyggja og þegar kemur að stöðunni á norðurslóðum og hvernig eigi að hlúa þar að mannlífi og náttúru og sjá til þess að hamfarahlýnun leiði ekki til þess að norðurslóðir verði á endanum óbyggilegar í lok þessarar aldar. Því miður stöndum frammi fyrir því ef við förum ekki að taka okkur á og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi og annars staðar með miklu áhrifaríkari hætti en við höfum verið að gera. Ég fagna því að það sé til sérstakrar umfjöllunar í Vestnorræna ráðinu og langaði að nota tækifærið í umræðu um þessa þingsályktunartillögu til að minna á að þessi umfjöllun er ekki ný af nálinni, að sjálfsögðu ekki, en hún er alveg jafn mikilvæg og hún var fyrir 20 árum og jafnvel mikilvægari. Við Íslendingar, stjórnvöld og Alþingi Íslendinga höfum mörg tækifæri til að beita okkur á þessum vettvangi til góðs.