framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína sem var mjög áhugaverð að mörgu leyti. Mér fannst mjög áhugavert í byrjun þegar hún talaði um samstarf við smærri þjóðir. Mér fannst hún svolítið ýja að því — hún sagði það nú ekki alveg berum orðum — að kannski væru Íslendingar ekki að sinna samstarfi við smærri þjóðir, væru meira að reyna að fá eitthvað út úr samstarfi við stórþjóðirnar og stórveldin. Mér finnst þetta samstarf mjög merkilegt. Við erum þarna í samstarfi við tvær þjóðir sem eru ekki sjálfstæðar en eru með heimastjórnir. Sjálfum finnst mér Ísland ekki hafa sinnt samstarfi við smærri þjóðir. Jú, við erum með háskólastofnun hérna sem heitir Rannsóknasetur um smáríki. Ég tel reyndar að þetta samstarf við Grænland og Færeyjar sé mjög mikilvægt og við ættum að hafa samstarf líka við eyjar í Karíbahafi og í Kyrrahafi þar sem eru smáþjóðir. Það væri gaman að heyra af reynslu hennar um hvort við hefðum ekki margt og mikið að gefa. Hún kom reyndar inn á það í lok ræðu sinnar að við hefðum mikið að gefa þessum smáþjóðum til að styrkja þessi samfélög sem eru mjög sérstök að mörgu leyti, sérstaklega Grænland sem er svo gríðarlega stórt land, sem myndi þá styrkja vestnorræna samstarfið og samstarf við Norðurlöndin í heild.
Mér fannst mjög áhugavert líka hjá hv. þingmanni að þessar tillögur ættu að koma inn í allsherjar- og menntamálanefnd þar sem þetta lýtur að fjarkennslu og svo líka í umhverfis- og samgöngunefnd. Mér finnst sjálfum varðandi fjarkennslu á Íslandi að þá ætti alltaf að taka tillit til þess að fjarkennsla gæti líka nýst á Grænlandi og í Færeyjum. Það eru gríðarleg tækifæri þarna í fjarkennslu og líka, eins og kemur fram í tillögunni, að auka námsframboð í þessum löndum hvað varðar fjarkennslu. Þá gæti Ísland lagt mjög mikið af mörkum. Ég styð þá tillögu heilshugar að þetta komi til umræðu í allsherjar- og menntamálanefnd og tel að það verði til góðs.
Hv. þingmaður minntist á togstreitu við Kaupmannahöfn. Ég tel reyndar ekki að þetta samstarf ætti að leiða til neinnar togstreitu við stjórnvöld í Kaupmannahöfn heldur ættu þau væntanlega að fagna því að þetta efli samfélögin í Færeyjum og Grænlandi og efli íslenskt samfélag og þar með norrænt samstarf.