framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir andsvarið. Já, samstarf við smærri þjóðir er okkur eðlilegt og það er líka skynsamlegt. Og þó að kannski megi flokka Ísland, Grænland og Færeyjar að einhverju leyti undir örþjóðir, ef maður horfir bara á íbúafjöldann — við vitum alla vega að margir líta þannig á okkur — þá er t.d. samstarf okkar innan Norðurlandaráðs samstarf smáþjóða þegar horft er á það á grunni alheimsins. En við lítum bara ekki þannig á okkur. Það segir kannski meira um sjálfsmynd Norðurlandabúa en nokkuð annað. En mín reynsla er sú að í alþjóðasamstarfi gerist það einhvern veginn þannig, og það er mín reynsla af samstarfi á vettvangi loftslagssamningsins, að þar hópast smáþjóðirnar saman af því að þær eiga svo margt sameiginlegt. Þær eiga svo margt sameiginlegt í efnahagslegu tilliti, með tilliti til samskipta við risaþjóðirnar. Það er t.d. mjög öflugt samstarf í loftslagssamningnum þar sem eyjar í Suður-Kyrrahafi mynda með sér mjög sterkt bandalag og eru þar í forystu í baráttunni gegn hamfarahlýnun af því að þær vita að ef hún verður og fer á versta veg þá hverfa heimkynni þeirra. Þar hefur rödd þeirra heyrst mjög hátt og skýrt. Ég hef alltaf litið svo á að okkur bæri bæði pólitísk og siðferðileg skylda til þess að standa með öðrum smáþjóðum, sérstaklega þegar kemur að því að tilveru þeirra er í rauninni ógnað, eins og í þessu dæmi.