152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.

643. mál
[14:17]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Já, það er rétt, þetta er mjög áhugavert viðfangsefni. Mér finnst sérstaklega áhugavert varðandi loftslagsmálin að nú er Grænlandsjökull eins konar, hvað á að segja, „ground zero“ eða miðdepill breytinga í loftslagsmálum hvað varðar sýnileika þeirra, varðandi minnkun Grænlandsjökuls og það allt, en svo eru hins vegar eyjarnar í Kyrrahafi sem taka við afleiðingunum. Samstarf allra smáþjóðanna þar við okkur væri því mjög áhugavert og væri hægt að mynda öflugt bandalag, ég tala nú ekki um á vettvangi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, ef maður lítur til atkvæðafjölda. Ég held einmitt að Ísland eigi að leggja miklu meiri áherslu á samstarf við smærri þjóðir en það hefur gert hingað til. Við hefðum margt fram að færa því að við erum gríðarlega farsælt samfélag miðað við stærð okkar. Við erum einungis 370.000 manns og ég held að samkvæmt skilgreiningu þá séum við svokallað „micro state“, örþjóð. En við lítum ekki á okkur sem smáþjóð, ég hef búið í Noregi og Norðmenn tala eiginlega meira um sig sem smáþjóð en Íslendingar. Þannig er nú það. Þeir passa mjög mikið upp á sitt. Þeir vita af smæð sinni og hafa lenti í klónum á stærri ríkjum í gegnum söguna. Kannski hefur fjarlægðin og einangrunin hjálpað okkur. En ég tel að það væri gott að báðar þessar tillögur varðandi samstarfið í fjarkennslumálum og loftslagsmálum færu inn í allsherjar- og menntamálanefnd og líka umhverfis- og samgöngunefnd. Ég held að það væri gott að samtvinna loftslagsmál og fjarkennslumál við stefnumál okkar hvað varðar þessar nefndir. Ég veit að þetta er utanríkismál en minni bara á að við fljúgum til Grænlands frá innanlandsflugvelli okkar, Reykjavíkurflugvelli, þannig að við getum líka tekið þetta svolítið með innanlandsumræðunni. Þetta eru okkar nánustu ríki og þegar verið er að tala um löndin í kringum okkur þá er aldrei talað um þessi ríki. Það er alltaf verið að tala miklu stærri ríki eins og Finnland, sem er enn lengra í burtu. Það er ekki rétt hjá okkur. Þetta eru löndin sem eru akkúrat í kringum okkur og ég tel að við eigum raunverulega að halda hérna áfram hvað þetta varðar. En það væri mjög gaman að heyra nánari umfjöllun um að þetta fari inn í fastanefndir þingsins.