152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.

643. mál
[14:21]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég á sæti í Vestnorræna ráðinu og tel þetta vera mjög mikilvægt mál á þeim vettvangi og fyrir þingið að fjalla um það og framfylgja ályktun um að skora á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd þessara tveggja ályktana Vestnorræna ráðsins sem voru samþykktar í september í fyrra um aukið samstarf á vettvangi umhverfis- og loftslagsmála annars vegar og samstarf vestnorrænna háskóla um fjarkennslu hins vegar. Ég tel það vera sjálfsagt mál og mikilvægt í þessu samstarfi. Varðandi umhverfis- og loftslagsmálin þá er í stjórnarsáttmálanum lögð gríðarleg áhersla á þau mál og ég fæ ekki betur séð en að það eigi að eyða milljörðum króna í loftslagsmál á Íslandi á næstu árum. Þá er mikilvægt að horfa til nánustu granna eða landanna í kringum okkur. Og þó að við notum það hugtak oft í stærra samhengi þá er það einmitt þar sem við eigum að rækta garðinn okkar en ekki fara algjörlega út um víðan völl þar sem rödd okkar heyrist kannski ekki og þótt við tölum þá er ekki hlustað á okkur. Þessi ríki sem við erum að vinna með í vestnorræna samstarfinu eru tvö ríki sem ekki eru sjálfstæð, Færeyjar og Grænland. Þau eru með heimastjórn, takmarkaða sjálfsstjórn, og landsmenn færri en við. Við erum 370.000 manns, Grænlendingar eru 56.000 manns og í Færeyjum búa 54.000 íbúar. Stærð landanna er mjög áhugaverð. Grænland er 2,1 milljón ferkílómetrar. Ísland er 103.000 ferkílómetrar. Færeyjar hins vegar, er langminnsta ríkið, 1.400 ferkílómetrar. Færeyjar eru minni en 1,5% af Íslandi en Grænland er 21 sinni stærra en við þannig að það er gríðarlegur stærðarmunur á þessum ríkjum. En við erum fjölmennust og við erum eina sjálfstæða ríkið. Og eins og hv. þm. Ásmundur Friðriksson kom inn á þá líta þessar þjóðir mjög upp til okkar í samstarfinu og nýta þennan vettvang líklega til að efla sín samfélög og þá kannski til sjálfstæðis.

Ég tel að varðandi stjórnvöld í Danmörku þá ætti ekki að vera nein togstreita vegna þessa samstarfs og mikilvægt að við séum ekki að skipta okkur af sjálfstæðisbaráttu þessara þjóða á nokkurn hátt þó svo að við gerum allt til að efla vestnorrænt samstarf. Það samstarf eflir samfélögin á Grænlandi og Færeyjum. Það er bara gott. Öflug Vestur-Norðurlönd leiða til enn öflugri Norðurlanda og það er mjög mikilvægt að ríki eins og Grænland upplifi sig sem hluta af Norðurlöndunum, sem órjúfanlega heild og geti tekið þátt í því samstarfi á eigin forsendum. Það er gott fyrir Grænland, gott fyrir Norðurlöndin og gott fyrir Ísland.

Umhverfis- og loftslagsmálin eru mál málanna í dag og mjög mikilvægt að umhverfisvernd og stuðningur við sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda sé lagður til grundvallar í samstarfinu og sé mikilvægur þáttur í því samstarfi. Græn umskipti og græn orkuskipti eru þar gríðarlega mikilvæg. Græn orka er þar að sjálfsögðu mjög mikilvæg og það var mjög áhugavert að heyra hv. þm. Ásmund Friðriksson tala um orkuhleðslustöðvarnar á Íslandi. Það sýndi hversu skammt við erum komin í þeim málum. Ég tel að við séum áratugum á eftir löndum eins og Noregi sem er þriðji stærsti markaður í heimi fyrir Tesla-bifreiðar á eftir Bandaríkjunum og Kína. Við ættum að spýta þar mjög vel í svo við getum a.m.k. keyrt hringinn og vestur á firði á rafmagnsbíl. Sjálfur treysti ég mér ekki til að kaupa rafmagnsbíl enn þá vegna hleðslustöðvanna, ég tala nú ekki um ef ég færi að keyra um mitt eigið kjördæmi á rafbíl, ég held að það sé algerlega útilokað. Það sýnir hvernig staðan er.

Við höfum margt fram að færa í vestnorrænu samstarfi varðandi orkumálin, t.d. þekkingu okkar á vatnsaflsvirkjunum og það er líka mikið samstarf í ferðaþjónustunni. Það samstarf hefur verið til margra ára og verið mjög farsælt. Ég tel hins vegar að það sé mikill munur á ferðaþjónustu í Færeyjum og Íslandi hvað varðar stærðina. Við eigum jafnvel meira sameiginlegt með ferðaþjónustu á Grænlandi, að við getum horft meira til Grænlands og það eru meiri möguleikar fyrir Grænlendinga að eiga samstarf við okkur út af flugsamgöngum frá Reykjavík til Grænlands. Ég þekki sjálfur til þess, góður vinur minn er að selja ferðir til Íslands og hann er meira að segja líka farinn að selja ferðir til Grænlands og Færeyja, en sérstaklega til Grænlands. Úti í heimi horfir fólk mikið á Ísland og Grænland saman. Það er mjög mikilvægt að horfa til grænnar ferðaþjónustu þar og ég vona að það verði hluti af þessu samstarfi. Annað sem skiptir líka máli er að við höfum fram að færa ákveðna þekkingu á þessum málum og þótt hún sé ekki nægjanleg þá tel ég að við getum fært mjög mikla þekkingu inn í þessi samfélög, bæði Grænland og Færeyjar, þar sem við erum stærst og við erum eina sjálfstæða ríkið. Við erum líka miðlæg, á milli landanna, og líka stærst, Reykjavík er stærsti þéttbýlisstaðurinn á öllu svæðinu og raunverulega eina borgin.

Varðandi fjarkennsluna þá eru gríðarlega mikil tækifæri á samstarfi þar og ekki síst á Grænlandi þar sem er gríðarlega langt á milli svæða. Þar get ég ekki séð annað en að það sé raunverulega verið að byggja þar kennslu á fjarkennslu að stórum hluta vegna fólksfæðar og hversu langt er á milli svæðanna. Þá er gott að eiga samstarf við nágranna sinn í austri sem er Ísland. Ég tel að það myndi auka námsframboð, eins og kemur fram í tillögunni til þingsályktunar, sem er einmitt mikilvægt fyrir smærri samfélög. Það er líka eitt sem ég vil vekja athygli á en það er íslenska tungan. Nú var forseti Íslands í Bandaríkjunum og var að tala um hina rafrænu íslensku, að það sé mjög mikilvægt að íslenskan fái aðgang að hinum rafræna heimi og verði þar fullgildur meðlimur. Nú er færeyskan örtungumál, okkar nánasta tungumál. Grænlenskan er mjög ólík okkar tungumáli en er örtungumál líka. Ég tel mikilvægt þegar við erum að tala fyrir rafrænni íslensku í heiminum, hjá Google og Microsoft og þessum fyrirtækjum, þá sé minnst á færeysku í leiðinni. Það eru gríðarleg verðmæti í færeysku tungunni og það væri alger synd ef því norræna tungumáli myndi hnigna eða að það yrði fórnarlamb þeirrar tæknivæðingar sem núna er og við erum að berjast fyrir að fá að lifa í. Þannig að það er mjög gott að minnast líka á að það eru tvær þjóðir við hliðina á okkur sem tala líka tungumál sem eru mjög lítil.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra en ég hlakka til að taka þátt í nefndarstörfum Vestnorræna ráðsins. Ég kemst því miður ekki til Grænlands núna í júní en ég hlakka til að taka þátt í störfum nefndarinnar í framtíðinni og þá sérstaklega þegar verður fundur núna í lok ágúst eða byrjun september.