framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.
Frú forseti. Það hefur verið mjög áhugavert og gaman að fylgjast með umræðunni hér um málefni vestnorrænu ríkjanna, Íslands, Færeyja og Grænlands. Hver þingmaður sem hér hefur talað hefur komið með áhugavert innlegg um þetta samstarf, hver með sínu nefi eins og okkur er gjarnt en allt saman mjög gott og mikilvægt. Það er eiginlega svolítið áhugavert að við erum mörg sem viðrum þá skoðun okkar að okkur hefur í gegnum tíðina verið svolítið hætt við því í alþjóðlegu samstarfi að líta langt yfir skammt. Þar með hafa nágrannar okkar og vinir í Færeyjum og á Grænlandi ekki alveg alltaf verið á radarnum hjá okkur. Svo hlusta ég á ræður hv. þingmanna þar sem hver kemur á fætur öðrum og lýsir yfir velvild sinni og þeirri skoðun að þetta sé mikilvægt samstarf og rökstyður það með sínu nefi. Og allt er þetta satt og rétt. Þannig að kannski er þetta bara einhver tilfinning sem maður hefur frá því á árum áður og þetta er hreinlega að breytast og við smám saman farin að meta þetta betur. Það er algerlega af hinu góða. Ég trúi því, og við höfum komið inn á það í umræðunni hér, að við, sem sjálfstæð þjóð í þessu samhengi og í þeirri óvenjulegu stöðu að vera stóra þjóðin, höfum auðvitað margt að gefa, en staðreyndin er sú að við höfum sannarlega margt að læra af þessum þjóðum líka. Þar skiptir tilvist starfs Vestnorræna ráðsins alveg gríðarlega miklu máli.
Ég starfaði um árabil sem blaðamaður á Morgunblaðinu og naut þess þá að fara í ferðir til beggja þessara landa með ljósmyndara og skrifa um daglegt líf og náttúruna. Eftir að ég hætti þar naut ég styrks frá Vestnorræna ráðinu til að fara á eigin vegum aftur með ljósmyndara og ferðast um bæði þessi lönd, taka viðtöl og kynnast staðháttum, bæði til forna og þeirra væntinga og drauma sem fólk hafði þá um framtíðina. Það var ómetanlegt og Vestnorræna ráðið, Íslandsdeildin, á allar mínar þakkir skildar enn þá fyrir að hafa veitt mér þetta tækifæri. Ég lærði margt af þessu.
Það sem kom mér þá á óvart eða það sem ég tók eftir var hvað báðar þessar þjóðir gerðu betur en við þá, en það var að halda í heiðri ákveðnar gamlar hefðir af ýmsum toga. Með öðrum orðum, að flýta sér ekki svo mikið inn í framtíðina að þær þurrkuðu út fortíðina. Mér finnst Ísland hafa náð sér á strik í þeirri mikilvægu nálgun. Ef til vill er það ferðaþjónustunni að þakka vegna þess að ferðamenn eru jú gjarnir á að hafa áhuga á löndum sem líta til gamalla hátta. Það hefur alla vega orðið mikil breyting á og við höfum einhvern veginn náð, að mínu viti, í skottið á þessum vina- og frændþjóðum okkar hvað það varðar. Það er hægt að taka framtíðinni fagnandi á eins góðan hátt og unnt er en halda samt ákveðnum hlutum úr gömlum hefðum og fortíðinni nálægt sér.
Hvað varðar þessi tvö atriði sem hér eru til umfjöllunar — og ég veit að þau munu fá skjótan framgang og treysti því að þingið muni líka veita viðkomandi ráðherrum aðhald í því að láta þá raunverulega standa við orðin. Það hefur komið fram í máli þeirra þingmanna sem hafa reynslu af þessu samstarfi að það hafi stundum viljað brenna við að ráðherrar telji sig ekki, eins önnum kafnir og þeir eru og með langa málalista, endilega bundna af einhverjum ályktunum sem koma frá þessum alþjóðanefndum. Þar má svo sem ímynda sér að þessi tiltekna alþjóðanefnd, Vestnorræna ráðið, sé ekki efst á blaði heldur en það er mjög mikilvægt að við þingið höldum þá ráðherrunum okkar vel við efnið.
Það er í sjálfu sér litlu við það að bæta sem hér hefur komið fram varðandi fyrri tillöguna, sem lýtur að auknu samstarfi á vettvangi umhverfis- og loftslagsmála. Það er bara óendanlega mikilvægt að við höldum annars vegar vöku okkar í þessum málum og tryggjum hagsmuni þeirra slóða heimsins sem við búum á og eigum allt undir, í samstarfi við þessar tvær þjóðir sem sannarlega eru í sömu sporum staddar og við, og síðan hitt að þetta er ekkert einkamál sem er bundið okkar heimshluta eins og við vitum. Hér er vagga þessara mála. Hér munum við geta lagað hluti. Hér munum við líka fyrst finna fyrir því ef illa fer. Það skiptir því alveg gríðarlega miklu máli að samstaðan þarna sé til staðar. Ef til vill verður okkar stærsta hlutverk sem stærstu þjóðarinnar í þessu samstarfi að vera brúin frá samstarfi þessara þriggja litlu þjóða, sem sannarlega vita sínu viti og hafa yfir að ráða sérfræðiþekkingu á þessu sviði, yfir í samfélag þjóða sem ráða næstu skrefum frekar. Ábyrgð okkar er því töluvert mikil í þessu samstarfi og ég veit að við munum gera allt til að standa undir henni.
Hvað varðar síðan samfélag háskólanna er það auðvitað gríðarlega mikilvægt. Eftir tveggja ára reynslu Covid-tímabilsins höfum við stokkið risastökk inn í framtíðina í þessum málum og munum vonandi geta nýtt okkur það. Mig langar akkúrat af því tilefni að nefna tungumálið. Eitt af því sem þessar þrjár þjóðir eiga sameiginlega í orði er ákveðin þekking á tilteknu tungumáli, en það er danskan sem Grænlendingar og Færeyingar tala og við lærum, skulum við segja. Ég held að það væri áhugavert að skoða möguleikann á því að við gerðum einhvern veginn þessu ágæta tungumáli hærra undir höfði í þessu máli. Með fullri virðingu fyrir hinu alþjóðlega tungumáli, enskunni, held ég að við yrðum sterkari ef við hefðum þetta sameiginlega tungumál. Það hjálpar líka íslenskunni að við stökkvum ekki svona auðveldlega yfir í það tungumál sem flestir tala. Danskan er líka tungumál á jaðarsvæði. Þetta var hugmynd sem mig langaði að henda inn í umræðuna hér og treysti því að nefndin skoði hana. Ég veit alla vega að einn hv. þingmaður sem nú er formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, Bryndís Haraldsdóttir, sem þekkir starf vestnorræna ráðsins líka vel, hefur svo sem rætt þetta áður. Við finnum vonandi einhverja lausn á því.
Ég ætla svo sem ekki að hafa þetta lengra. Ég gæti það varla þó að ég vildi af því að ég er að verða búin með tímann. Ég ætla bara að óska nefndinni velfarnaðar í störfum sínum og veit að þið sem ný eruð í nefndinni munuð njóta þess að kynnast þessum tveimur löndum og þjóðum. Fáir eru það sem sýna okkur jafn sterkt í verki að við erum vinir og það er mikilvægt að eiga vini.