152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.

643. mál
[15:01]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Við ræðum hér þingsályktunartillögu um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021. Ég fékk það tækifæri að sitja í Vestnorræna ráðinu stutta kjörtímabilið 2017 og það er mjög áhugavert starf og skemmtilegt. Eins og kemur fram í máli hv. þingmanna í dag tengist þetta okkur mjög sterkt en samt erum við kannski ekki að rækja þessi samskipti með þeim hætti sem við ættum að gera almennt og ættum að vera miklu virkari, kannski sérstaklega gagnvart Grænlandi og í samskiptum við Grænland. Þær ályktanir sem eru bornar hér fram og við ætlum að reyna að samþykkja hér í þinginu fyrir sumarið eru málefni sem eru mjög sterklega tengd okkur að mörgu leyti og þessum löndum og mjög mikilvægt að við förum í þá vinnu að vinna úr þessum hugmyndum.

Græn umskipti eru náttúrlega það sem við erum að leggja gríðarlega áherslu á hér á Íslandi. Reyndar eru allir að leggja áherslu á þessi mál og ekki síst núna eftir að Úkraínustríðið hófst þá eru grænu umskiptin orðin stóra málið, græn orka og að tryggja orkuöryggi í löndunum. Hvað varðar endurnýjanlega orku gætum við mögulega eitthvað lært af Færeyingum. Færeyingar hafa lagt mikla áherslu á vindaflið og hafa verið að setja upp vindmyllur á undanförnum árum og hefur gengið vel. Ég man ekki alveg tölurnar, náði ekki að fletta aftur upp í þeim, en mig minnir að orka frá vindafli sé jafnvel orðin 30% eða 40% af þeirri orku sem Færeyingar nýta. Fyrir örfáum árum var bara olían orkugjafi þannig að þetta er klárlega að nýtast vel og spennandi að fylgjast með þessu. Í Færeyjum er fyrst og fremst verið að horfa almennt á hefðbundinn atvinnurekstur og heimili en þetta er mjög spennandi og ég held við gætum mögulega lært eitthvað af því hvernig menn eru að vinna þessi mál í Færeyjum. Á Grænlandi hefur vatnsaflið verið nýtt. Íslensk fyrirtæki hafa m.a. komið að því. Menn hafa kannski setið fyrirlestra á Arctic Circle í Hörpu, þar hafa verið töluverðar kynningar á síðustu ráðstefnum sem snúa að vatnsafli og möguleikum tengdum því á Grænlandi. Það væri mjög æskilegt að það gæti orðið almenn nýting á þeirri grænu orku á Grænlandi, bæði fyrir heimili og atvinnurekstur. Meira að segja hefur verið rætt um kapla á milli Íslands og Grænlands til að tengja saman löndin og nýta orku af Grænlandsjökli.

Fiskveiðar eru náttúrlega höfuðatvinnugrein þessara landa og stigin hafa verið gríðarlega stór skref í öllum þessum löndum til að fiskveiðar verði sjálfbærar. Auðvitað er hægt að gera betur og það mun þróast áfram en við höfum verið að sjá mikinn árangur í eldsneytisnotkun, olíunotkun og slíkum þáttum á undanförnum árum. Grænar samgöngur eru einn af þeim liðum sem minnst er á í tillögunni. Þar hefur náðst töluverður árangur á Íslandi og við erum á töluverðri siglingu í því en það er erfiðara á Grænlandi eins og samgöngumálum er háttað þar. Nánast allt er gert með flugi á milli þorpa og bæja þar sem engir vegir liggja á milli þeirra á Grænlandi. Þyrluflug og flugvélar halda samgöngum uppi. En rafmagnsflugið er að koma og vonandi sjáum við framþróun í því og líka á Íslandi og í Færeyjum, líka með kannski breyttri tækni. Þar gætu skapast möguleikar í slíku flugi yfir eyjarnar og annað.

Ferðaþjónusta er náttúrlega orðin okkar helsta atvinnugrein og hún hefur verið vaxandi bæði á Grænlandi og í Færeyjum, þótt hún hafi ekki tekið þau risastökk sem hafa verið hér á landi. En eðli hennar er kannski töluvert ólíkt, ef við tökum Ísland og Grænland. Hún er kannski líkari á Íslandi og í Færeyjum þar sem fólk flýgur til Íslands og Færeyja og tekur bílaleigubíla og keyrir um. En eins og ég kom inn á þá eru engir vegir til þess að keyra á milli á Grænlandi þannig að þetta er annars konar túrismi en við þekkjum hérna heima, aðeins öðruvísi eðli. En auðvitað gagnvart annarri starfsemi í ferðaþjónustunni getum við örugglega lært af hvert öðru.

Það er ekki annað hægt, þegar rætt er um hina ályktunina sem snýr að fjarkennslu og háskólum, en að fylgjast töluvert með þessu eins og með Háskólann á Akureyri og samstarf við háskólann í Nuuk. Ég hef átt ágætissamtöl um það og líka þegar við vorum að vinna í norðurslóðastefnunni sem var samþykkt á síðasta kjörtímabili, þá kom þessi möguleiki einmitt sterkt fram í kynningum. Í skýrslu um samstarf Grænlands og Íslands á nýjum norðurslóðum er einmitt komið inn á þetta mikilvæga hlutverk. Eins og hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir kom inn á áðan hefur Háskólinn á Akureyri sérhæft sig í fjarkennslu um áratugaskeið og lagt gríðarlega áherslu á það í sinni sögu. Það fer að styttast í að það verði orðin 35 ár sem hann hefur verið starfandi, og síðustu 25 ár a.m.k. hefur verið gríðarlega mikil áhersla lögð á fjarkennslu og í dag eru 75% nemenda Háskólans á Akureyri í fjarnámi en 25% staðnemendur. Um 600 manns í staðkennslu og síðan 1.800–1.900 manns í fjarkennslu. Það hefur verið mikill áhugi á að reyna að tengja þetta við Háskólann í Nuuk og það kemur fram í þessari ályktun frá Vestnorræna ráðinu um aukið samstarf landanna þriggja um háskólamenntun með aðstoð fjarkennslu, bættra fjarskipta og tækniþróunar. Við þekkjum það að eftir Covid breyttist hugmyndafræðin aðeins og hugsun fólks varðandi hluti eins og fjarnám og fjarfundi og að geta unnið með nánum hætti þótt fjarlægðirnar séu miklar með því að nýta nýjustu tækni. Ég ætla að vona að við hættum því ekki hér á Íslandi þó að nú ári betur þegar við erum laus við Covid, heldur höldum við áfram að nýta þessa tækni og tækifærin sem hún skapar.

Bætt fjarskipti eru síðan hlutur sem ég hef haft mikinn áhuga á og lagði mikla áherslu á í norðurslóðastefnunni. Við þekkjum hvað það skiptir gríðarlega miklu máli hér á Íslandi, bætt fjarskipti og uppbygging farsímakerfa og ljósleiðara og allt sem er verið að gera. Ljósleiðarinn hefur gegnt þar lykilhlutverki og er búinn að umbreyta Íslandi á síðustu tíu árum eftir að hann kom til sögunnar með þeim hætti sem við þekkjum í dag og þeim möguleikum sem hann skapar. Fjarlægðirnar á Grænlandi eru hins vegar slíkar og svo er það bergið og annað að það er kannski ekki hægt að tengja beint saman en þar verður kannski notuð önnur tækni. En áherslur mínar voru helst á leiðsöguþjónustu í lofti, gervihnattaleiðsögu, sem skiptir gríðarlega miklu máli að fá hér á vesturhluta Íslands, styrkja á austurhlutanum og fá hana yfir Grænland. Það gæti í raun umbreytt flugsamgöngum á Grænlandi og bætt þær mikið ef gervihnattaleiðsaga kæmi til. Vestnorræna ráðið tók á síðasta kjörtímabili á þeirri vinnu og reyndi að halda henni á lofti.

Hv. þm. Logi Einarsson kom rétt inn á flugumsjónina, frá Íslandi er stýrt svæði sem er 52 sinnum stærra en Ísland, gríðarlega stórt svæði sem nær yfir Grænland, fer fyrir ofan 19.500 fetin ef ég man rétt, og yfir Færeyjar og nánast til Hjaltlandseyja og síðan á norðurpólinn. Þar hefur verið mikil samvinna og Isavia hefur hjálpað til með flugumferðarstjórn í Kangerlussuaq á Grænlandi, á alþjóðaflugvellinum þeirra, og vonandi þróast það með jákvæðum hætti og við höfum verið að mennta grænlenska flugumferðarstjóra til að sinna því hlutverki.

Svo er rétt að benda í lokin á skýrslu sem kom líka út á síðasta ári um samskipti Íslands og Færeyja og tillögur til framtíðar. Það er því búið að vinna mikið efni á þessu sviði á síðustu árum, á síðasta kjörtímabili, og vonandi nýtist það í áframhaldandi vinnu.